Innlent

Helga Hrafni líst ekkert á útspil stjórnarflokkanna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Helga Hrafni líst ekkert á gang mála.
Helga Hrafni líst ekkert á gang mála.
Reiknað er með því að stjórnarflokkarnir kynni síðar í kvöld áframhaldandi samstarf sitt fram á haust með Sigurð Inga Jóhannsson í stóli forsætisráðherra. Efnt verði til kosninga í haust. Helga Hrafni Gunnarssyni, þingmanni Pírata, líst ekkert á það.

„Mér finnst það ekki í neinu samræmi við kröfuna sem ég hef tekið eftir. Hvorki almenningi hér fyrir utan né öðrum,“ segir Helgi. Það rói ekki fólk sem telji sig svikið.

„Ég sé það ekki nei. Mér finnst það undirstrika aðeins hvað þeir (stjórnarflokkarnir) eru í veikri stöðu en ég geri ekki ráð fyrir að það rói marga.“

Trúnaðarbrestur

Píratar mældust með 43% fylgi í könnun fréttastofu 365 sem kynnt var í morgun. Slíkt fylgi myndi skila mörgum þingsætum og spurning hvort Píratar og aðrir flokkar séu klárir í kosningar fyrr en í haust.

„Í fyrsta lagi er þetta ekkert spurning um hver er tilbúinn. Það er orðinn trúnaðarbrestur á milli þessarar stofnunar og almennings. Það verður að taka á því út frá hagsmunum þjóðarinnar. Þetta gengur ekkert svona,“ segir Helgi Hrafn.

Píratar þyrftu að vinna hratt eins og aðrir og legið hefði fyrir að kosningar yrðu næsta vor þannig að flokkarnir ættu að vera komnir í startholurnar. Hann segir enga ástæðu fyrir flokkana að slá af kröfu sinni um vantraust og þingrof.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×