Innlent

Mótmæla á Bessastöðum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Búið var að boða til mótmæla núna klukkan 14:30 við Bessastaði þar sem ríkisráðsfundir fara fram í dag. Um 20 mótmælendur eru nú mættir á Bessastaði að sögn blaðamanns Vísis á staðnum.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá Bessastöðum en á meðal þeirra sem eru mættir eru þeir Hjörtur Howser og Sigurður Kaiser. Hjörtur sagðist mættur til að mótmæla en Sigurður kvaðst vera að rannsaka mótmælin.

Þá má sjá myndband af mótmælunum í spilaranum hér að ofan en mótmælendurnir mega ekki fara nær húsinu en sést á myndbandinu þar sem löggan bannar þeim það.

Sigurður Kaiser og Hjörtur Howservísir/bo
vísir/bo
vísir/bo



Fleiri fréttir

Sjá meira


×