Verkið mesta Kristján Þór Sverrisson skrifar 10. mars 2016 07:00 Mannanna verk eru mörg og sum hver afar tilkomumikil. Hvernig er hægt annað en að fyllast lotningu og aðdáun þegar menn virða t.d. fyrir sér háhýsin á Manhattan, pýramídana í Egyptalandi, eða þotu taka á loft, og er það ekki stórkostlegt að geta ekið undir Hvalfjörðinn, og innan nokkurra ára til Vestmannaeyja? Við erum umkringd mannvirkjum og tækni sem eru afrakstur þrautseigju og hugarfars sem segir að við eigum aldrei að gefast upp heldur prófa okkur áfram og ekki sætta okkur við neitt annað en fullkomnun. Já, það er alveg óhætt að segja að það sé töggur í fólkinu sem byggir þessa jörð. En hvert skyldi vera manna mesta einstaka verk? Kínamúrinn, pýramídana, fyrstu geimskutluna og margt fleira mætti sjálfsagt nefna sem hugsanleg svör; enda gríðarlegur fjöldi vinnustunda á bak við hvert þessara. Kannski þurfum við þó ekki að ferðast langa leið til að berja afrekið mikla augum. Líklegt er að það sé til heima hjá þér, uppi í hillu. Biblían. Bók bókanna. Þótt auðvitað verði aldrei allir sammála um svar við spurningunni þá finnst mér alls ekki fráleitt að tala um Biblíuna sem mannanna mesta verk. Hugsaðu þér hve mikil vinna liggur að baki þessari bók sem til er á flestum heimilum. Öld eftir öld, ritun, varðveisla, skýringarvinna, þýðingar, prentun, útgáfa og dreifing. Í helli, í tjaldi, undir berum himni, í klaustri, í fjósi við kertaljós eða við blámann af tölvuskjáum samtímans. Þeir skipta þúsundum og aftur þúsundum sem hafa helgað starfsævi sína alla Biblíunni. Hún hefur verið þýdd að hluta eða í heild á tæp 3.000 tungumál og fjöldi seldra og gefinna eintaka er mörgum sinnum meiri en það sem næst kemur.Einstök varðveisla Þegar Ísraelsmenn afrituðu texta Gamla testamentisins á skinn eða pappírsarkir þá var reglan sú að ef ein lítil villa, t.d. stafsetningarvilla, fannst þá var öllu kastað í eld. Fullkomið skyldi það vera! Oft heyrast þær raddir að textum Biblíunnar hafi valdamenn í gegnum tíðina breytt að eigin geðþótta. Þetta er einfaldlega ekki rétt. Rannsóknir ritskýrenda, fornleifafræðinga og fleiri eru flestar á einu máli um einstaka varðveislu upprunalegu textana. Það skeikar í raun engu á því sem við lesum í dag og því sem ritað var fyrir t.d. 2.800 árum. Skálholtsútgáfan gaf nýverið út bókina „Stóra púsluspilið“ eftir Hans Johan Sagrusten. Hún fjallar um leitina að elstu handritum Biblíunnar og veitir skýra sýn á varðveislu textanna og hvað handritafundir hafa leitt í ljós. Biblían er miklu meira en mannanna verk. Ritningar hennar eru innblásnar af heilögum anda. Hún hefur að geyma orð Guðs til okkar allra. Sá sem lýkur Biblíunni upp í auðmýkt og leyfir henni að tala inn í líf sitt mun sjá að orð hennar er lifandi. Biblían getur veitt syrgjandi huggun, hikandi hvatningu og ráðvilltum leiðsögn. Sú speki sem er að finna í Orðskviðunum á jafn mikið erindi við fólk í dag og fyrir þrjú þúsund árum. Sjálfur byrjaði ég að lesa í Biblíunni fyrir 18 árum, þá með það fyrir augum að finna í henni ósamræmi, villur og neikvæðan boðskap. En það sem gerðist var að orð hennar rifu mig upp á hnakkadrambinu og sýndu mér öll mín brot og bresti. Mér leið illa. En ég hélt áfram að lesa og var þá leiddur að vötnum þar sem ég fékk næði og mér sagt að óttast ekki. Áfram las ég og allt í einu sá ég Jesú. Ég spurði hann: „Er það satt sem stendur hér um þig? Ertu raunverulegur?“ Jesús svaraði: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig.“ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Sjá meira
Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun
Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar
Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun