Lífið

Rugluðust á Whoopi Goldberg og Oprah: Voru að elska húðflúrið á Oprah

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mjög vandræðalegt.
Mjög vandræðalegt. vísir/getty
Tískusíðan Total Beauty hefur fengið töluverða gagnrýni á sig eftir Óskarsverðlaunahátíðina og það kannski réttilega.

Síðan ruglaðist nefnilega á leikkonunni Whoopi Goldberg og þáttastjórnandanum heimsfræga Oprah Winfrey. Síðan tísti eftir farandi á sunnudagskvöldið; „Við höfðum ekki hugmynd að Oprah væri með húðflúr, og við erum að elska það.“ Með tístinu var mynd af Whoopi Goldberg á rauða dreglinum.

Tístið var fljótlega fjarlægt en þá höfðu mörg þúsund manns náð skjáskoti. Stuttu síðan kom afsökunarbeiðni frá Total Beauty á Twitter.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×