Hrókurinn tók Tasiilaq með trompi Jakob Bjarnar skrifar 4. mars 2016 09:16
Skákfélagið Hrókurinn hélt Polar Pelagic-hátíð á Austur-Grænlandi, sem lauk nú í vikunni. Sem fyrr var það forseti Hróksins, Hrafn Jökulsson, sem fór fyrir liði sem taldi fimm að þessu sinni og voru þeir viku á Grænlandi; efndu til kennslu, skákmóta og fjöltefla í Kulusuk og Tasiilaq. Og, það var ekki bara skákin sem var á dagskrá:Teflt við börn í Tasiilaq „Þá stóð Hrókurinn fyrir útskurðarnámskeiði fyrir börnin í Kulusuk. Gleðin var allsráðandi á Polar Pelagic-hátíðinni, sem markaði upphaf fjórtánda starfsárs Hróksins á Grænlandi,“ segir Hrafn. En að þessu sinni var með í för var listamaðurinn Guðjón Kristinsson frá Dröngum. Stórmeistarinn Henrik Danielsen, sem komið hefur margoft til Grænlands á vegum Hróksins, kenndi börnunum í Tasiilaq og hafði sér til aðstoðar Jürgen Brandt frá Þýskalandi og Jón Grétar Magnússon, tæknistjóra Hróksins. „Þeir heimsóttu flestar bekkjardeildir í skólanum í Tasiilaq og á mánudag var efnt til stórmóts þar sem um 100 börn tefldu. Sigurvegari varð Mikael Brandt, Daniel Jörgensen hlaut silfur og Aqqa Larsen brons. Allir þátttakendur á mótinu fengu verðlaun,“ segir Hrafn sem er afar ánægður með hvernig til tókst að þessu sinni.Gnótt glaðbeittra tuskudýra Reyndar hefur skáktrúboð Hrafns og Hróksins verið sérlega vel heppnað verkefni sem orðið hefur til þess að byggja margvíslegar brýr milli þessara nágrannaþjóða.Hrafn, sem gengur undir nafninu Qaardulu á Austur-Grænlandi, kenndi börnunum skák en 47 börn eru nú í skólanum í Kulusuk. Þá tefldi Hrafn fjöltefli við öll börnin og um helgina var haldið BROS-stórmót, þar sem næstum 40 börn og nokkrir fullorðnir, kepptu um glæsilegan bikar. „Gaman er að segja frá því að stúlkurnar í Kulusuk röðuðu sér í fimm efstu sætin. Sigurvegari var Pipaluk Uitsatikisoq, í 2. sæti varð Qivi Sianale og Aqqa Larsen vann bronsið,“ segir Hrafn. Listamaðurinn Guðjón Kristinsson vann hug og hjörtu barnanna í Kulusuk á útskurðarnámskeiði, þar sem hann galdraði fram listamanninn í börnunum. Af þessu tilefni var skólanum færð mjög vegleg gjöf með útskurðarhnífum og öðrum búnaði. Hér var um að ræða gjöf frá íslenskri velgjörðarkonu grænlenskra barna.Hrafn fylgist með gangi mála á skákmóti meðal krakka á Grænlandi.Hátíðinni lauk með heimsókn í leikskólann í Kulusuk, en þar eru tólf börn. Öll fengu þau gjafir frá Íslandi og leikskólinn fékk gnótt af glaðbeittum tuskudýrum.Bakhjarlar Hróksins Hrafn segir aðalbakhjarl hátíðarinnar vera grænlensk-íslenska sjávarútvegsfyrirtækið Polar Pelagic, sem er í eigu Polar Seafood á Grænlandi og Síldarvinnslunnar á Neskaupstað. „Aðrir bakhjarlar voru Flugfélag Íslands, sem tekið hefur þátt í skáklandnámi Hróksins frá upphafi árið 2003, TOYOTA, Nói Síríus, ÍsSpor, BROS-bolir, ZO-ON, veitingastaðurinn Einar Ben, IKEA, HENSON og fleiri. Þá fóru Hróksmenn klyfjaðir til Grænlands með prjóna- og ullarföt frá prjónahópum Gerðubergs og Rauða krossins í Reykjavík,“ segir Hrafn og er kominn í óstöðvandi plögggír: „Hrókurinn þakkar öllum sem lögðu lið við undirbúning og framkvæmd skemmtilegrar hátíðar. Nú um páskana liggur leið Hróksmanna í Scoresby-sund, ellefta árið í röð, og í maí verður mikil Flugfélagshátíð í Nuuk, þar sem hinir heimsfrægu stórmeistarar Nigel Short og Jóhann Hjartarson verða heiðursgestir.“Fylkja sér að baki Hróksins sem er nú á sínu 14. starfsári með skáktrúboð á Grænlandi.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira