Að gefnu tilefni Þingflokkur Bjartrar framtíðar skrifar 5. mars 2016 07:00 Víða í Evrópu, meira að segja á Norðurlöndum, hafa þröngsýnir og öfgafullir stjórnmálaflokkar sem ala á útlendingaótta náð fótfestu undanfarið. Í þeim löndum þar sem öfl af þessum toga hafa náð völdum hafa einræðistilburðir í stjórnarháttum fylgt í kjölfarið. Lýðræðið, víðsýnin, manneskjulegt samfélag byggt á mannréttindum og samhygð á undir högg að sækja. Baráttan um opið, frjálst samfélag á sér stað í Evrópu og víðar og hún mun eiga sér stað í sívaxandi mæli á Íslandi. Við í þingflokki Bjartrar framtíðar teljum mikilvægt að vekja athygli á þessu. Við spáum því að í alþingiskosningum að ári muni öfgafull öfl af þessu tagi gera sig gildandi hér á landi, í nýjum og gömlum flokkum. Grunngildi eins og þau, að heilbrigt samfélag eigi að rétta fólki í neyð - eins og flóttafólki - hjálparhönd, að ákvarðanir skulu teknar lýðræðislega á grunni upplýsinga, að hleypidómar og hræðsluáróður ráði ekki ferðinni, að við eigum að bera ábyrgð í samfélagi þjóðanna, í sameiginlegri viðureign þeirra við stríðsógnir og umhverfisvá, - öll þessi gildi eru í hættu. Þau eru ekki sjálfsögð. Að þeim er vegið af óbilgirni, bæði austan og vestan Atlantsála. Gegn þessu þarf að berjast af staðfestu. Hin góðu gildi þarf að verja, annars grefst undan þeim. Höfum þess vegna eitt alveg á kristaltæru: Björt framtíð mun ætíð berjast af staðfestu gegn fordómum, hræðsluáróðri, útlendingaótta, mannvonsku, forheimsku, einræðistilburðum og óábyrgri þjóðernispopúlistapólitík.Til þess vorum við stofnuð. Við vildum að þið vissuð þetta. Annars erum við góð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hver ber kostnaðinn þegar landinu er lokað? Friðrik Árnason Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson Skoðun Dýnamík hópeineltis, hóphegðun fína og ófína fólksins Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson Skoðun Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð Birna G. Magnadóttir Skoðun Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna Finnbjörn A. Hermannsson Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Reikningurinn sem svefninn getur ekki borgað Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Píeta samtökin í 10 ár Hildur Eir Bolladóttir skrifar Skoðun Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð Birna G. Magnadóttir skrifar Skoðun Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) skrifar Skoðun Hvað merkir íslenskt nei? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Geta stofnanir sparað og bætt þjónustuna? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver ber kostnaðinn þegar landinu er lokað? Friðrik Árnason skrifar Skoðun Dýnamík hópeineltis, hóphegðun fína og ófína fólksins Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar Skoðun Umferð í Reykjavík og samgönguásar höfuðborgarsvæðisins Elías B Elíasson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Hvar liggja mörk sjálfræðis? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ferðaþjónustan gerir Ísland skemmtilegra Ragnhildur Ágústsdóttir skrifar Skoðun Um helmingur lækna á Landspítala í fullu starfi Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Sjá meira
Víða í Evrópu, meira að segja á Norðurlöndum, hafa þröngsýnir og öfgafullir stjórnmálaflokkar sem ala á útlendingaótta náð fótfestu undanfarið. Í þeim löndum þar sem öfl af þessum toga hafa náð völdum hafa einræðistilburðir í stjórnarháttum fylgt í kjölfarið. Lýðræðið, víðsýnin, manneskjulegt samfélag byggt á mannréttindum og samhygð á undir högg að sækja. Baráttan um opið, frjálst samfélag á sér stað í Evrópu og víðar og hún mun eiga sér stað í sívaxandi mæli á Íslandi. Við í þingflokki Bjartrar framtíðar teljum mikilvægt að vekja athygli á þessu. Við spáum því að í alþingiskosningum að ári muni öfgafull öfl af þessu tagi gera sig gildandi hér á landi, í nýjum og gömlum flokkum. Grunngildi eins og þau, að heilbrigt samfélag eigi að rétta fólki í neyð - eins og flóttafólki - hjálparhönd, að ákvarðanir skulu teknar lýðræðislega á grunni upplýsinga, að hleypidómar og hræðsluáróður ráði ekki ferðinni, að við eigum að bera ábyrgð í samfélagi þjóðanna, í sameiginlegri viðureign þeirra við stríðsógnir og umhverfisvá, - öll þessi gildi eru í hættu. Þau eru ekki sjálfsögð. Að þeim er vegið af óbilgirni, bæði austan og vestan Atlantsála. Gegn þessu þarf að berjast af staðfestu. Hin góðu gildi þarf að verja, annars grefst undan þeim. Höfum þess vegna eitt alveg á kristaltæru: Björt framtíð mun ætíð berjast af staðfestu gegn fordómum, hræðsluáróðri, útlendingaótta, mannvonsku, forheimsku, einræðistilburðum og óábyrgri þjóðernispopúlistapólitík.Til þess vorum við stofnuð. Við vildum að þið vissuð þetta. Annars erum við góð.
Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar
Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir Skoðun