Að þakka fyrir sig Eyvindur P. Eiríksson skrifar 8. mars 2016 07:00 Seint þakka sumir og þakka þó. Hér þakkar þessi áttræði tölvupikkari, sem lengst kenndi útlendingum íslensku en skrifar nú bækur. En þau sem ráða gefa þær ekki út, enda „of mikil ádeila“. Ádeila? Er ekki flest að fara til hákristilegs fjandans? Ekki trúlaus gaurinn en lítt hrifinn af al-þettaoghitt-guði, hvaða nafni sem nefnist. Sköpunarklúður hans vill hann t.d. ekki kenna einhverjum „honum“ eða „henni“ um. Það verk stjórnast augljóslega af einhverju „gengur-gengur ekki“-lögmáli. Hver startaði því BANG-i er annar handleggur. „Hver skapaði guð?“, spurði barnið „Ljótt að skrökva“, sagði mamma, og skulu trúboðendur minntir á, að það er enn ljótt, sérstaklega að börnum, þótt vel sé borgað. M.a.o.: Hvaða hrellir fór að kalla dauðahjálp „dráp“? Enginn drepinn, aðeins hjálpað úr kvölum. Sem hver olli? Útgefendur svara ekki kallinum og skal þakkað fyrir að vekja ekki vonlausum sölumanni verka sinna falskar vonir. Jú, einn skammaðist yfir trufluninni: Að bjóða sér handrit! Skrifarinn hér kann ekki að vera í klíku, bara klípu. Og allir hata Strandamenn! Ha? Hah! Jæja. Það hefur víst lítið að segja hvað okkur finnst, þessum aumingjalýð, lösnum eða gömlum, sem getur sjálfum sér um kennt, að amrískum sið, að hafa bara tvö hundruð þúsund Íslandskrónur á mánuði og sumir ekki það. Skítt með menntun og starfskunnáttu, ef maður er of lítill fáviti til að hafa „vit“ á að skipta henni í einkagróða. Nei, „athafnamennirnir“, sem geta að vísu ekki athafnað sig án aðstoðar stjórnvalda, sem þeir sjálfir kosta til valda, fá auðvitað að hrifsa sem mest þeir mega – og eiga. Um þetta sjá pólitísku sprellikallarnir þeirra, og „nikkedukkerne“! Gróðamennin stjórna almennt fjölmiðlum, frjáls pressa lítt í boði frekar en í US-inu og víðar. Þetta gengur, því borgarinn er að jafnaði heiðarlegur, trúir þeim. Flesta dreymir líka um að fá smámola af dýra brauðinu, skinnin. Samfélagið er spillt hvort eð er. Furðumargt frábært hér einnig þó. „Ókei og holræs“, sagði leikfélagi fyrir vestan. En manni sýnist 60% landans ganga með sjálfspíningarhvöt, fínt orð! Eða „Massa-kiss-me“, sko.Biggasti lúserinn En öllu fer fram. Já? Laugavegur orðinn enskubúðagata í amrísku krummaskuði, gerir út á túristabylgju sem brotnar svo og fjarar út. Áfram veginn silast bílafólkið, þekkir ekki stæðahús, eyðir ævinni mengandi þannig, meðan blessuð þjóðin stefnir hraðan í að verða aftur biggasti lúserinn. Kaupmenn vita ekki um göngugöturnar vinsælu í útlandinu. Kallinn þessi hefur ekki átt bíl í hundrað ár, æææ, hjólað mestalla sína hundstíð, oftast á eigin uppgerðu hjólum. Átt hins vegar skútur og skektur. Unnið fjölda starfa, m.a.s. sem blaðamaður, átti t.d. viðtal í Moskvu við Leonov, fyrsta mann sem fór út úr fari í geimnum, og kafteininn, Beljaév. Sá líka Ararat en enga örkina samt. Jájá. Honum mér tókst sem sé að verða gamall. Þá hlupu ástin mín og krakkarnir upp til handa og fóta og skutu í Norræna húsinu á málstofu og listakvöldi á Sólon. Þar taldist Strandakallinn allmerkur maður, gott skáld og rithöfundur, jafnvel sæmilegur fræðimaður. Frábært fólk ræddi stubbinn og verk hans, eða flutti brot úr hans og eigin verkum. Bar honum gjafir. Hann er varla kominn niður á fasta jörð enn. Ástarþakkir Gro Tove, börnin mín og makar og börn, ekki síst Bragi og Eldey, besti bróðir og frú og þeirra börn, Dagný, Ástráður, Njörður, Jóhanna, Egill, Steini gamli vinur, Valdi, Teitur, Morten, Óttar, Ari og Kjuregei, og aðrir vinir nær og fjær. Næst er að hugsa fyrir því níræða, í Reykjavík, Arnardal eða á Sandsmork. Kannski uppi á næsta skýi? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Byggjum fyrir eldra fólk, ekki ungt Ólafur Margeirsson Skoðun Hlustum í eitt skipti á foreldra Jón Pétur Zimsen Skoðun Hugleiðingar um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs Örn Sigurðsson Skoðun Okkar lágkúrulega illska Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir Skoðun Öndum rólega – á meðan húsið brennur Magnús Magnússon Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Skoðun Halldór 23.8.2025 Halldór Skoðun Skoðun Stattu vörð um launin þín Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Byggjum fyrir eldra fólk, ekki ungt Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Hlustum í eitt skipti á foreldra Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hugleiðingar um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs Örn Sigurðsson skrifar Skoðun Heildstætt heilbrigðiskerfi – hagur okkar allra Alma D. Möller skrifar Skoðun Vanþekking eða vísvitandi blekkingar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun „I believe the children are our future…“ Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægi félagasamtaka og magnað maraþon Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Allt sem ég þarf að gera Dagbjartur Kristjánsson skrifar Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Notkun ökklabanda Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar Skoðun Ný sókn í menntamálum Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð, fálmandi mjálm eða aðgerðir? Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Vin í eyðimörkinni – almenningsbókasöfn borgarinnar Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu staðreyndir um alvarlegustu kvenréttindakrísu heims Stella Samúelsdóttir skrifar Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftirlíking vitundar og hætturnar sem henni fylgja Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Gagnvirkni líkama og vitundar til heilbrigðis Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Nýjar lausnir í kennslu – gamlar hindranir Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Nótt Thorberg skrifar Sjá meira
Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar
Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar