Sendi fimmtán ára stúlku myndband af lim sínum Jóhann Óli Eiðsson skrifar 24. febrúar 2016 20:53 Dómari taldi "[e]kki er með nokkru móti unnt að fallast á það með ákærða að háttsemi hans geti verið honum refsilaus.“ vísir/valli
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi á mánudag karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa sent fimmtán ára stúlku myndskeið af lim sínum í gegnum samskiptaforritið Snapchat. Brotið átti sér stað í júlí 2014. Maðurinn var ákærður fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndalögum með því að hafa í tvígang sent stúlkunni mynd af getnaðarlim sínum og skilaboð þar sem stóð „send þú“ en með því hvatti hann stúlkuna til að senda kynferðislega mynd af sjálfri sér. Þegar brotið átti sér stað starfaði maðurinn í skóla stúlkunnar. Stúlkan greindi frá því við skýrslutöku hjá lögreglunni að hún hefði tjáð ákærða að hún hefði fengið sér gat í geirvörtuna og hann hafi í kjölfarið beðið hana um að senda sér nektarmyndir. Samskipti þeirra fóru fram í gegnum Snapchat en með forritinu sendi hún honum mynd af lokknum í geirvörtu sinni.Texti myndbandsins of óskýr Samkvæmt framburði stúlkunnar svaraði maðurinn með því að senda henni stutt myndband af typpi sínu. Hún hafi sent honum til baka að myndbandið hefði verið oft stutt og hann sent þá annað lengra. Brotaþoli notaði þá forrit til að vista myndbandið í síma sínum og var það lagt fram sem sönnunargagn í málinu. Eftir þetta lokaði stúlkan á frekari samskipti við ákærða á samskiptamiðlum. Hinn ákærði játaði fyrir dómi að hafa sent stúlkunni mynd af lim sínum í tvígang en neitaði því að hafa hvatt hana til að senda myndir af sér. Hann bar því við að öll samskipti þeirra hefðu verið að frumkvæði hennar. Til að mynda hefði hún sent myndina af geirvörtu sinni af fyrra bragði. Í niðurstöðu dómsins segir að þau gögn sem lögð hafi verið fram af ákæruvaldinu nægi ekki til að færa sönnur á það að maðurinn hafi sent orðin „send þú“. Sé það vegna þess að myndband það sem lagt var fram sé ekki nógu skýrt til að hægt sé að greina hvað stendur. Var maðurinn því ekki sakfelldur fyrir þann ákærulið. Hins vegar var það mat dómarans að sú háttsemi að senda stúlkunni upptökur af getnaðarlimnum gætu ekki talist refsilausar. Var það metið manninum til refsiþyngingar að hann starfaði við skóla stúlkunnar. Refsing hans var ákveðin þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára. Að auki var honum gert að greiða stúlkunni 250.000 krónur í miskabætur og þriðjung sakarkostnaðar.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira