Skilorð fyrir að blekkja meintan vændiskaupanda Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 25. febrúar 2016 17:51 Hæstiréttur hefur staðfest dóm yfir ungri stúlku sem blekkti meintan vændiskaupanda. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur staðfest dóm yfir ungri stúlku sem dæmd var í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild sína að fjársvikamáli þar sem hún, í félagi við tvö aðra, blekkti meintan vændiskaupanda til þess að greiða stúlkunni 40.000 krónur í reiðufé fyrir kynlífsþjónustu. Málið teygir anga sína aftur til 22. janúar 2013 þegar maðurinn hringdi í lögregluna og sagðist hafa verið skorinn. Hann var alblóðugur þegar lögreglumenn komu á vettvang og með stórt sár á hálsi.Sjá einnig: „Ég þorði ekki öðru en að segja já“Hafði maðurinn mælt sér mót við stúlkuna þetta kvöld í Kópavogi. Hringdi hann í símanúmer sem hún hafði áður gefið upp þegar þangað kom. Stúlkan kom út að bifreið hans og greiddi hann henni 40.000 krónur fyrir kynlífsþjónustu. Sagðist hún þá þurfa að skreppa í burtu. Ruddust þá Gísli Þór Gunnarsson og Jón Einar Randversson inn í bíl hans og gerðu tilraun til þess að ræna hann. Ránstilraunin fór hinsvegar út um þúfur þegar Gísli Þór skar manninn á háls.Sjá einnig: Auglýstu vændi og réðust á kaupendaStúlkan sagði fyrir Héraðsdómi á sínum tíma að tilviljun hafi ráðið því að hún hafi hitt ákærðu þennan dag og hafi hún ekki þorað öðru en að taka þátt í fjársvikabroti þeirra. Var hún dæmd í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild sína að málinu. Gísli Þór var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjársvik, tilraun til ráns og árás með hníf fyrir þátt sinn í málinu. Ríkissaksóknari áfrýjaði dóminum til Hæstaréttar og var þess krafist að stúlkunni yrði gerð refsing. Hæstiréttur staðfesti hinsvegar dóm Héraðsdóms en gerði athugasemdir við að verulegur dráttur hafi orðið á meðferð málsins eftir að héraðsdómur var kveðinn upp 16. apríl 2015. Segir Hæstiréttur að ekki hafi verið gefnar haldbærar skýringar á þessum drætti og sé hann aðfinnsluverður.Dóm Hæstaréttar má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira