Vill að heilsugæslan geti greitt arð jón hákon halldórsson skrifar 26. febrúar 2016 07:00 Heilbrigðisráðherra kynnti í gær breytingar á greiðslufyrirkomulagi í heilbrigðisþjónustunni. Vísir/anton
Þórarinn Ingólfsson, formaður Félags íslenskra heimilislækna, segist ekki skilja það markmið heilbrigðisráðherra að meina rekstraraðilum heilsugæslustöðva að greiða sér arð af rekstri fyrirtækisins. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra kynnti í gær breytt greiðslufyrirkomulag í heilsugæslunni. Hann vonast til þess að þrjár nýjar einkareknar heilsugæslustöðvar verði opnaðar fyrir árslok. Á blaðamannafundi í gær sagði ráðherra að rekstraraðilar heilsugæslustöðva myndu ekki geta greitt sér arð. Yrði afgangur af rekstri ætti hann að fara í uppbyggingu heilsugæslustöðvarinnar. „Ég skil ekki og ég hef sagt það við Kristján af hverju heimilislæknar eða rekstraraðilar þessarar heilbrigðisþjónustu þurfi að vinna við einhver önnur skilyrði en önnur heilbrigðisfyrirtæki. Eins og þetta hefur verið praktíserað á Norðurlöndunum, þá eru engar hömlur á þessu fremur en öðru,“ segir Þórarinn Ingólfsson. Kristján Þór sagði aftur á móti að á meðan heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu væri undirfjármögnuð væri óeðlilegt að reka tvöfalt launakerfi. „Þannig að mér fannst eðlilegt í þeirri stöðu sem við erum í að vera bara með einfalda skýra línu og ná að byggja heilsugæsluna upp með öllum þeim fjármunum sem hægt er að fá til hennar áður en að við förum í þennan fasa.“Þórarinn Ingólfsson, formaður Félags íslenskra heimilislækna.Birgir Jakobsson landlæknir sagðist telja að starfsfólk í heilbrigðisþjónustu væri að ná sýnilega góðum árangri í heilbrigðisþjónustunni. „Að geta sýnt öðrum og sjálfum sér fram á það. það er mín reynsla en síðan getum við rætt endalaust um bónusgreiðslur og launatengdan afrakstur og svo framvegis.“ Undir þetta tók Þórarinn. Auðvitað vilja allir fá góða umbun fyrir sín störf en það hefur ekki úrslitaáhrif Þórarinn sagði mikilvægt fyrir starfsfólk heilsugæslunnar að geta skapað sín eigin starfsskilyrði. „Það að standa í rekstri er svolítið annað en að mæta í vinnuna og stimpla þig inn og út. Það er meiri ábyrgð. Það er starfsmannahald og svo framvegis,“ sagði Þórarinn. Hann sagði að áhugi yngri lækna á eigin rekstri væri meiri. Þeir sem eldri væru hefðu síður áhuga á að vinna kvöld- og helgarvinnu við skipulagningu, starfsmannahald og fleira. Þórarinn sagði að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hafi komið mjög illa út í könnun sem var gerð á meðal sérnámslækna fyrir tveimur árum. „Það voru held ég fjórir læknar af fjörutíu sem vildu vinna þar. Það verður að gera eitthvað.“Jón Hákon Halldórsson
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira