Landsbankinn fær 2,4 milljarða frá Valitor samkvæmt varfærnu mati bankans Heimir Már Pétursson skrifar 27. febrúar 2016 18:23
Bankastjóri Landsbankans segir bankann fá 38 prósent af þeirri greiðslu sem Valitor muni fá fyrir hlut sinn í Visa Europe, sem varlega sé áætlað að verði tveir komma fjórir milljarðar króna. Fjármálaráðherra bíður nú svara Bankasýslunnar við bréfi hans til stjórnar hennar þar sem hann sagði stöðuna vegna Borgunarmálsins vera mjög alvarlega. Í bréfi Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra til stjórnar Bankasýslunnar hinn 11. febrúar vísaði hann til opinberrar umræðu um Borgunarmálið og sagði meðal annars "að samkvæmt upplýsingum og gögnum sem vísað hafi verið til í þeirri umræðu mætti ætla að það verð sem bankinn fékk fyrir eignarhlut sinn hafi verið mun lægra en eðlilegt gæti talist." Fjármálaráðherra minnti á að þótt Bankasýslunni "hafi verið komið á fót til að ríkið væri trúverðugur eigandi fjármálafyrirtækja og að tryggt að ekki yrðu höfð pólitísk afskipti af rekstri slíkra fyrirtækja.... sé honum sem fjármálaráðherra ætlað að setja félögunum eigendastefnu þar sem gerð sé grein fyrir almennri stefnumörkun eiganda."Fjármálaráðherra bíður svara Bankasýslunnar Landsbankinn birti glæsilegt uppgjör sitt fyrir síðasta ár í gær þar sem m.a. er lagt til að ríkinu verði greiddur met arður, eða 28,5 milljarðar króna. En í ljósi Borgunarmálsins er hins vegar ekki ólíklegt að fjármálaráðherra íhugi að gera breytingar á stjórn bankans. Það kæmi þá í hlut Bankasýslunnar að leggja fram slíkar breytingartillögur fyrir aðalfund Landsbankans í næsta mánuði. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar ætlar fjármálaráðherra ekki að bíða mikið lengur eftir viðbrögðum hennar við bréfi hans fyrir rúmum hálfum mánuði. Fyrirvari Landsbankans við söluna á Valitor hefur ekki verið birtur opinberlega og hafa sumar heimildir fullyrt við fréttastofu að hann væri í engu betri en borgunarfyrirvarinn. En Steinþór Pálsson bankastjóri segir hagsmuni bankans tryggða þar. „Ég veit ekki hvað þú átt við þar. Þar tryggðum við okkar hagsmuni til framtíðar. Inni í þeirri sölu fáum við 38 prósent af því sem Vísa eða valitor er að fá. Við áttum 38 prósent í félaginu. Þetta er líka í samræmi við það viðskiptamagn sem við höfum verið með hjá Vísa. Þannig að ég sé ekki annað en við höfum gætt okkar hagsmuna þar,“ segir Steinþór. Samkvæmt varfærnu mati í ársuppgjöri bankans sé gert ráð fyrir að Landsbankinn muni fá um 2,4 milljarða vegna yfirtökunnar á Vísa Europe. Skeytasendingar hafa hins vegar gengið á milli Borgunar og Landsbankans að undanförnu vegna fyrirvarans í borgunarsamningnum.Þarf bankinn að gera hreint fyrir sínum dyrum? „Málið er í athugun hjá Fjármálaeftirlitinu. Síðan er Bankasýslan líka að skoða málið. Við erum búin að skila af okkur mikið af gögnum, mikið af upplýsingum,“ segir Steinþór og bankinn bíði eftir því að þessir aðilar klári sína skoðun.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Fleiri fréttir Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Sjá meira