Maður handtekinn fyrir að káfa á fjölda kvenna Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. febrúar 2016 09:26 Miðborg Reykjavíkur Vísir/Hari
Það var svo sannarlega erilsamt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt, aðfaranótt sunnudags. Eftir því sem fram kemur í dagbókarfærslum lögreglunnar þurfti hún að sinna á sjötta tug útkalla í nótt sem flest tengdust ölvun. Laust eftir miðnætti í nótt kom stúlka á lögreglustöðina við Hverfisgötu sem tilkynnti að hún hafði verið rænd af stúlku skömmu áður. Sú hafi verið vopnuð eggvopni. Stúlkan sem kom á stöðina sagðist hafa verið að bíða eftir bróður sínum sem var að klára vinnu á veitingastað í vesturbæ Reykjavíkur. Málið er til rannsóknar. Þá réðst kona á dyravörð á skemmtistað í miðbænum á öðrum tímanum í nótt. Að sögn lögreglunnar brást hún illa við þegar átti að vísa henni út af staðnum og hafi hún því slegið tvo dyraverði. Í framhaldi af því var „hún tekin í tök,“ eins og það er orðað í dagbókarfærslunni. Það lagðist illa í karlmann sem var með konunni og réðst hann í kjölfarið á dyraverðina. Lögregla kom á vettvang og skakkað leikinn. Rætt við alla aðila málsins og að því loknu „voru gerendur lausir“. Fjölþreifinn karlmaður var að sama skapi handtekinn í nótt eftir að tilkynningar bárust af manni sem káfaði á konum í miðbænum. Þegar lögreglan kom á vettvang gátu í það minnsta fjórar konur bent á hann sem geranda. Hann var vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður þegar af honum rennur.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Sjá meira