Prins póló og kók kveikjan að hálfrar aldar sambandi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 29. febrúar 2016 10:08
Hjónin Böðvar Pálsson og Lísa Thomsen kynntust á sveitaballi í félagsheimilinu Borg í Grímsnesi fyrir rétt rúmum fimmtíu árum síðar. Haldið var upp á fimmtíu ára afmæli félagsheimilisins í gær og rifjuðu hjónin upp hvernig þau kynntust í tilefni þess. „Ég bauð þessari stúlku upp og sleppti henni svo ekkert það sem eftir var af ballinu en ég gaf henni prins póló og kók,“ segir Böðvar. Þau kynntust á sveitaballi sem haldið var í Gömlu Borg árið 1961, fyrir 55 árum og man Lísa vel eftir þessu. „Hvort ég man, maður gleymir nú ekki svona. Þetta var voða gaman. Svo keyrði hann mig heim, ég var að vinna sem sundlaugarvörður á Laugarvatni. Hann sagði við fólkið sem kom með honum á ballið: Þið verðið að redda ykkur fari heim því að ég ætla að keyra dömu heim,“ segir Lísa með bros á vör.Lísa og Böðvar kynntust á sveitaballi sem haldið var í Gömlu Borg.Vísir/PjeturFacebook komið í stað sveitaballaÁ Borg voru oft haldin fræg böll með vinsælustu hljómsveitum landsins. Sveitaböllin hafa nú verið aflögð en félagsheimilinu hefur verið breytt í menningarhús sveitarinnar. Böðvar og Lísa segjast bæði sakna sveitaballanna á Borg enda hafi fjölmörg ástarsambönd orðið til þar. „Ég skil ekki hvernig fólk kynnist í dag þegar það eru ekki sveitaböll lengur en það er bara í gegnum Facebook og það finnst mér miður. Að geta ekki hitt manninn og dansað við hann og svona, augliti til auglits,“ segir Lísa áður en að Böðvar útskýrir hvað hafi að sínu mati gert út af við sveitaböllin. „Ég held að þetta hafi gerst þegar bjórinn kom. Þá hætti fólk að hafa ánægju hvort að öðru, að taka utan um dömuna og dansa við hana. Labba svo út í bíl og gefa henni prins póló og kók,“ segir Böðvar.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira