Hópslagsmál í hesthúsahverfinu á Selfossi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 29. febrúar 2016 15:31 Á kortinu má sjá hvar hesthúsahverfið er. vísir/loftmyndir.is
Lögreglan á Suðurlandi var kölluð út aðfaranótt sunnudags vegna 15 til 20 ungmenna sem voru í hópslagsmálum í hesthúsahverfinu á Selfossi. Þegar lögreglan kom á staðinn voru slagsmálin afstaðin, að því er segir á Facebook-síðu lögreglunnar, og hafði fækkað í hópnum. Tveir ungir karlmenn voru sárir eftir en með minniháttar áverka. Ekki liggur fyrir formleg kæra en málið er í rannsókn. Þá var nokkuð um innbrot á Suðurlandi í liðinni viku en meðal annars var brotist inn í Þjónusutmiðstöðina á Þingvöllum á föstudagsmorgun og þaðan stolið skiptimynt. Öryggiskerfi fór af stað klukkan 07.25 og þegar öryggisvörður kom á staðinn var búið að brjóta rúðu á vesturhlið Þjónustumiðstöðvarinnar. Þjófnaðurinn er óupplýstur og engar vísbendingar um hver var að verki. Alls voru 38 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi í seinustu viku en lögreglumenn á Kirkjubæjarklaustri kærðu 13 þeirra á Suðurlandsvegi fyrir vestan og austan Klaustur. Tólf voru erlendir ferðamenn og mældust tveir þeirra á 149 kílómetra hraða á klukkustund. Þá var einn tekinn á 142 kílómetra hraða, annar á 136 kílómetra hraða og aðrir voru ekki langt þar frá. Þrír ökumenn voru auk þess kærðir fyrir ölvunarakstur og einn fyrir fíkniefnaakstur. Þá var karlmaður handtekinn á Hellu á miðvikudagskvölds vegna meints brots á nálgunarbanni. Hann var í haldi lögreglu á meðan frumrannsókn fór fram. Maðurinn var látinn laus eftir yfirheyrslu daginn eftir.Helstu verkefni lögreglunnar á Suðurlandi vikuna 23. til 29. febrúar 2016. Í síðustu viku voru 38 ökumenn kærðir fyrir...Posted by Lögreglan á Suðurlandi on Monday, 29 February 2016
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Fleiri fréttir Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Sjá meira