Skeytingarleysi vinnumarkaðarins gagnvart fötluðu fólki Bergur Þorri Benjamínsson skrifar 10. febrúar 2016 07:00 Það fór ekki framhjá undirrituðum þegar einum starfsmanni Landsbankans í Reykjanesbæ var sagt upp störfum. Starfsmaður þessi hafði unnið í bankanum í 30 ár og hann sinnti vinnu sinni vel og sýndi ríka þjónustulund. Samkvæmt upplýsingum frá bankanum og almennri vitneskju var þessi starfsmaður í svipuðu starfi allan sinn feril hjá bankanum. Starfsmaðurinn afgreiddi m.a greiðslukort til viðskiptavina og sá um almenna upplýsingagjöf. Það að hann hafi unnið í sama starfinu í 30 ár vekur hins vegar upp spurningar um hvort viðkomandi hafi ekki haft möguleika á að vinna sig upp í starfi. Var það vegna þess að viðkomandi er fatlaður? Ekið var á viðkomandi fyrir nokkru síðan. Hann var vegna þessa frá vinnu í 5 mánuði og ekki leið á löngu frá því hann snéri aftur til vinnu þar til honum var sagt upp. Nú er það alltaf þannig að einhverjum er sagt upp. Fyrirtæki þurfa jú að sníða sér stakk eftir vexti. Það gleymist hins vegar algjörlega að þeim sem búa við skerta starfsorku er sagt upp fyrst þegar uppsagnir standa fyrir dyrum og fá síðast ráðningu, þegar búið er að leita logandi ljósi að starfskrafti. Oftar en ekki spilar þarna inn í að minnihluti starfa eru hlutastörf. Nú er það hins vegar þannig að allir þurfa hlutverk í lífinu og ef það er ekki til staðar veslast fólk upp. Það snýr sólarhringnum við og þar fram eftir götunum. Í Þýskalandi hafa þarlend stjórnvöld tekið undir þetta sjónarmið. Þar í landi gildir m.a. að vinnustaðir þar sem 20 eða fleiri starfa þurfa að minnsta kosti 5% starfsmanna að vera fatlaðir. Gildir bæði um opinbera geirann og um einkageirann. Annars borga fyrirtæki sektir. Þar í landi hafa vinnuveitendur ríka ábyrgð gagnvart fötluðum starfsmönnum, þurfa þeir t.d. að sjá til þess að starfsmenn hafi möguleika til þess að vinna sig áfram innan fyrirtækisins. Þetta er gert undir merkjum samfélagslegrar ábyrgðar.Betur má ef duga skal Á Íslandi eru engin takmörk á því hversu skeytingarlaus vinnumarkaðurinn getur verið. Eftir hrunið var fatlað fólk látið fara í löngum röðum. Síðan þá hafa greiðslur úr almannatryggingakerfinu hækkað meðal annars vegna þessa. Með þessu er ég ekki að segja að fatlað fólk eigi að vernda á einhvern átt, en til að það standi jafnfætis þarf að bjóða upp á lausnir svo það sé mögulegt. Engum myndi detta í hug að hafa öll hús með tröppum, þess vegna eru settar lyftur svo allir hafi jafnt aðgengi að manngerðu húsnæði. Sama gildir um vinnumarkaðinn, það þarf að lyfta honum upp! Mörg fyrirtæki hafa þó sýnt lit í þessum efnum og ráðið fatlað fólk, en betur má ef duga skal. Ríki og sveitarfélög eru fjármögnuð með skattfé frá okkur sem byggjum landið og við eigum kröfu á að þessir aðilar gangi á undan með góðu fordæmi. En gera þau það? Árið 2012 var meðal starfsmannafjöldi þeirra sem eru með fötlun hjá hverju ráðuneyti 1. Já þú last rétt, einn! Ergo, ríkið gengur á undan með góðu fordæmi eða hitt þó heldur. Á meðan gráta forsvarsmenn fjárveitingavaldsins yfir hækkandi útgjöldum til almannatrygginga. Þeim vorkenni ég ekki, fyrst þarf að breyta viðhorfum vinnumarkaðarins áður en þeirra tár verða þerruð. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Tengdar fréttir Að vinna með atvinnulífinu en ekki gegn því Samkeppniseftirlit hafa mikilvægu hlutverki að gegna í öllum þeim ríkjum sem líta á virka samkeppni sem helsta drifkraft atvinnulífsins. Þetta á við um öll ríki í okkar heimshluta, báðum megin Atlantsála, enda er samkeppnislöggjöf mjög þróuð í þeim ríkjum öllum, 10. febrúar 2016 07:00 Mest lesið Umbætur á skólakerfinu. Hættum að ljúga. Hættum því alveg og hættum því strax Atli Harðarson Skoðun Er ég ömurlegt foreldri ef ég segi nei við barnið mitt? Stefán Þorri Helgason Skoðun Þátttökuverðlaun Þórdísar Ragnar Þór Pétursson Skoðun Ákall til ESB-sinna: Hvar eru undanþágurnar? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Vindorkuvæðing í skjóli nætur Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Fjármálaráðherra búinn að segja A Ögmundur Jónasson Skoðun Seljum börnum nikótín! Hugi Halldórsson Skoðun Hvar liggur ábyrgð hins fullorðna á hegðun ungmenna í samfélaginu? Rakel Guðbjörnsdóttir Skoðun Sundrung á vinstri væng Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Akademískt frelsi og ókurteisi Kolbeinn H. Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Seljum börnum nikótín! Hugi Halldórsson skrifar Skoðun Sundrung á vinstri væng Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Þegar samfélagið missir vinnuna Hrafn Splidt Þorvaldsson skrifar Skoðun Akademískt frelsi og ókurteisi Kolbeinn H. Stefánsson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgð hins fullorðna á hegðun ungmenna í samfélaginu? Rakel Guðbjörnsdóttir skrifar Skoðun Yfir hverju er verið að brosa? Árni Kristjánsson skrifar Skoðun Umbætur á skólakerfinu. Hættum að ljúga. Hættum því alveg og hættum því strax Atli Harðarson skrifar Skoðun Stjórnvöld sem fjárfestatenglar Baldur Thorlacius skrifar Skoðun Ákall til ESB-sinna: Hvar eru undanþágurnar? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Er ég ömurlegt foreldri ef ég segi nei við barnið mitt? Stefán Þorri Helgason skrifar Skoðun Vindorkuvæðing í skjóli nætur Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þátttökuverðlaun Þórdísar Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Fjármálaráðherra búinn að segja A Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hagfræði-tilgáta ómeðtekin Karl Guðlaugsson skrifar Skoðun Ótryggt aðgengi á Veðurstofureit Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Stattu vörð um launin þín Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Byggjum fyrir eldra fólk, ekki ungt Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Hlustum í eitt skipti á foreldra Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hugleiðingar um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs Örn Sigurðsson skrifar Skoðun Heildstætt heilbrigðiskerfi – hagur okkar allra Alma D. Möller skrifar Skoðun Vanþekking eða vísvitandi blekkingar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun „I believe the children are our future…“ Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægi félagasamtaka og magnað maraþon Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Allt sem ég þarf að gera Dagbjartur Kristjánsson skrifar Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Notkun ökklabanda Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Að vinna með atvinnulífinu en ekki gegn því Samkeppniseftirlit hafa mikilvægu hlutverki að gegna í öllum þeim ríkjum sem líta á virka samkeppni sem helsta drifkraft atvinnulífsins. Þetta á við um öll ríki í okkar heimshluta, báðum megin Atlantsála, enda er samkeppnislöggjöf mjög þróuð í þeim ríkjum öllum, 10. febrúar 2016 07:00
Umbætur á skólakerfinu. Hættum að ljúga. Hættum því alveg og hættum því strax Atli Harðarson Skoðun
Skoðun Hvar liggur ábyrgð hins fullorðna á hegðun ungmenna í samfélaginu? Rakel Guðbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Umbætur á skólakerfinu. Hættum að ljúga. Hættum því alveg og hættum því strax Atli Harðarson skrifar
Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar
Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Umbætur á skólakerfinu. Hættum að ljúga. Hættum því alveg og hættum því strax Atli Harðarson Skoðun