Ofanflóðasjóður lokar á Siglufjörð Sveinn Arnarsson skrifar 12. febrúar 2016 21:54 Fossvegur fór í sundur í vatnavöxtunum. Mynd/Viðlagatrygging Íslands
Ofanflóðasjóður telur sig ekki geta komið frekar að kostnaði við viðgerðir á tveimur götum norðarlega í Fjallabyggð vegna flóða sem urðu á Siglufirði þann 28. ágúst í fyrra. Bæjarráð Fjallabyggðar er ósátt við afgreiðslu Ofanflóðasjóðs og fól bæjarstjóra, Gunnari Birgissyni, að rita bréf til Ofanflóðanefndar vegna málsins. Þetta kemur fram í bókun bæjarráðs Fjallabyggðar. „Ofanflóðanefnd telur ekki forsendur vera til frekari aðkomu að kostnaði vegna viðgerða vegna tjóns sem varð á Hólavegi og Fossvegi á Siglufirði, umfram 9.1 milljón,“ segir í bréfi Ofanflóðanefndar. Einnig óskar nefndin í bréfinu eftir gögnum um vinnu við hreinsun sunnarlega á Siglufirði áður en afstaða yrði tekin til þess hvort Ofanflóðanefnd ætlaði sér að taka þátt í kostnaði við þau verk. Þann 28. ágúst flæddi Hvanneyrará yfir bakka sína. Venjulega er hún sem lítill lækur í gegnum Siglufjörð norðarlega í bænum. Hinsvegar óx hún svo mjög frá morgninum að varð hún sem beljandi stórfljót um miðjan dag. Veðurathugunarstöðin á Sauðanesi í Almenningum sýndi að morgni föstudagsins 28. ágúst, úrkomu upp á 114,7 mm, sem er gríðarlega mikil úrkoma. Sólar-hringnum áður hafði fallið 41 mm svo mikið vatn var til staðar í fjöllum fyrir ofan Siglufjörð þegar Hvanneyraráin breiddi úr sér.Loforð forsætisráðherra Bæjarráð Fjallabyggðar er að vonum ósátt með niðurstöðu Ofanflóðanefndar. Vilja þau ná lendingu í málinu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra mætti til Siglufjarðar fljótlega eftir flóðin til að virða fyrir sér hamfarasvæðið. Í viðtali við Fréttablaðið þremur dögum eftir hamfarirnar hafði hann þetta að segja um það hvernig ríkið gæti komið að því að styðja við bakið áheimamönnum í því verkefni að koma Siglufirði í samt lag. „Við þurfum í sameiningu, heimamenn og stjórnvöld, að vinna saman að því að leysa úr málum. Eitthvað fellur utan viðlagatrygginga og það þarf að meta það hvort ekki sé hægt að finna lausn á því að bæta það og svo í framhaldinu að skoða hvort ekki þurfi að huga að innviðauppbyggingu. Stjórnvöld þurfi að skoða meðal annars hvort ofanflóðasjóður hafi hlutverki að gegna í þessum aðstæðum,“ sagði Sigmundur Davíð þann 31. ágúst síðastliðinn.
Tengdar fréttir Eitt stærsta aurflóð sem fólk man eftir Gríðarmikil úrkoma sólarhringinn fyrir flóðin á Siglufirði olli því að þúsundir rúmmetra skriðu fram. Sjö skriður loka veginum milli Siglufjarðar og Fljóta og nokkra daga tekur að hreinsa fráveitukerfi bæjarins. 31. ágúst 2015 07:00 Úrhelli á Siglufirði: „Holræsakerfi bæjarins er fullt af drullu“ Hreinsunarstarf er að hefjast á Siglufirði en gríðarlegt úrhelli var þar í gær með tilheyrandi aurskriðum og vatnsflaumi. 29. ágúst 2015 09:59 Segir koma til greina að notast við ofanflóðasjóð Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að unnið verði með heimamönnum á Siglufirði um hvernig takast eigi á við kostnað vegna úrhellisins. 31. ágúst 2015 10:17 Úrhelli á Siglufirði: „Hefur gengið djöfullega að eiga við ástandið“ Slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar segir losnað hafi úr snjóflóðavarnargarðinum og farið á hús. 28. ágúst 2015 15:27 Hryllilegt að sjá leirdrulluna leka inn og rústa húsunum Ljóst er að tjón af völdum vatnavaxtar er mikið í Fjallabyggð. Á Siglufirði stóð yfir viðamikið hreinsunarstarf en hátt í þrjátíu hús skemmdust í vatnsveðrinu í gær. 29. ágúst 2015 19:30 Margra daga vinna að hreinsa veginn til og frá Strákagöngum Fulltrúar viðlagatryggingar fóru norður strax í gær til að meta tjónið sem orðið hefur í vatnavöxtunum þar seinustu daga. 29. ágúst 2015 14:43 Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira
Eitt stærsta aurflóð sem fólk man eftir Gríðarmikil úrkoma sólarhringinn fyrir flóðin á Siglufirði olli því að þúsundir rúmmetra skriðu fram. Sjö skriður loka veginum milli Siglufjarðar og Fljóta og nokkra daga tekur að hreinsa fráveitukerfi bæjarins. 31. ágúst 2015 07:00
Úrhelli á Siglufirði: „Holræsakerfi bæjarins er fullt af drullu“ Hreinsunarstarf er að hefjast á Siglufirði en gríðarlegt úrhelli var þar í gær með tilheyrandi aurskriðum og vatnsflaumi. 29. ágúst 2015 09:59
Segir koma til greina að notast við ofanflóðasjóð Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að unnið verði með heimamönnum á Siglufirði um hvernig takast eigi á við kostnað vegna úrhellisins. 31. ágúst 2015 10:17
Úrhelli á Siglufirði: „Hefur gengið djöfullega að eiga við ástandið“ Slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar segir losnað hafi úr snjóflóðavarnargarðinum og farið á hús. 28. ágúst 2015 15:27
Hryllilegt að sjá leirdrulluna leka inn og rústa húsunum Ljóst er að tjón af völdum vatnavaxtar er mikið í Fjallabyggð. Á Siglufirði stóð yfir viðamikið hreinsunarstarf en hátt í þrjátíu hús skemmdust í vatnsveðrinu í gær. 29. ágúst 2015 19:30
Margra daga vinna að hreinsa veginn til og frá Strákagöngum Fulltrúar viðlagatryggingar fóru norður strax í gær til að meta tjónið sem orðið hefur í vatnavöxtunum þar seinustu daga. 29. ágúst 2015 14:43