GoRed Valgerður Hermannsdóttir skrifar 16. febrúar 2016 00:00 Hvað er það eiginlega,“ spurðu samstarfskonur mínar þegar ég sagði þeim að ég væri hluti af vinnuhópi sem væri að undirbúa GoRed-daginn. Þessar ágætu konur, sem hafa alla jafna svör við öllu sem ég spyr þær um, hvort sem það snýr að umönnun sjúklingahóps okkar, matargerð, prjónaskap eða heimsmálunum, stóðu á gati. GoRed eru alheimssamtök sem hrint var af stað árið 2004 af Alþjóðahjartasambandinu. Hlutverk þeirra er að vinna að upplýsingasöfnun, rannsóknum og fræðslu um hjartasjúkdóma kvenna og forvarnir gegn þeim. Hér á landi er það Hjartavernd sem er heimili þessara samtaka, en auk þess standa Hjartaheill og Heilaheill að samtökunum og Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, er verndari átaksins. Frá árinu 2009 hefur GoRed-dagur verið haldinn árlega á Íslandi. Og nú hvetjum við alla til að fylgjast með viðburðum hjá GoRed í febrúar. GoRed for Women var stofnað til að vekja fólk til vitundar um hjartasjúkdóma kvenna. Fram undir miðja tuttugustu öld var það svo til óþekkt að konur fengju hjartasjúkdóma en eftir árið 1950 fór að bera á sjúkdómnum hjá konum og jókst tíðni hans nokkuð hratt. Fram að því hafði einkennt sjúkdómssögu hjarta- og æðasjúkdóma að það voru karlmenn sem veiktust og því var þetta talinn karlasjúkdómur. Í beinu framhaldi af því var öll umræða um hjartveika menn og rannsóknir voru gerðar á hópi karlmanna.Ólík einkennum karla Sjúkdómseinkenni kvenna með hjartasjúkdóma eru oft ólík einkennum karla sem veldur því oft að konur koma seinna til læknis eða í meðferð. Samtökin vinna nú að rannsóknum þar sem meðal annars er lögð áhersla á að konur séu í rannsóknarhópi. Það er einnig staðreynd að hjartasjúkdómar koma yfirleitt seinna fram hjá konum og er það að einhverju leyti vegna þess að á barneignartíma er það hormónastarfsemi hjá konum sem seinkar æðakölkun og á það einnig við í kransæðum. Líkami þeirra gengur þá í gegnum aldursbreytingar og við tíðahvörf minnka áhrif estrogenhormóns, sem meðal annars hefur gegnt því hlutverki að hafa mýkjandi áhrif á æðaveggi. Aðrar breytingar eins og hækkun blóðþrýstings, hækkun kólesteróls og hækkun þríglýseríða í blóði fylgja svo í kjölfarið. Konur lýsa einkennum oft á annan hátt en karlmenn. „Lýsing á verkjum sem einkennandi eru fyrir hjarta- og æðasjúkdóma og koma fram jafnt hjá konum sem körlum: Þyngsli eða verkur fyrir brjósti eða fyrir neðan bringubein, óþægindi eða verkur milli herðablaða, í hálsi, kjálka eða maga. Verkur sem kemur við áreynslu og hverfur við hvíld og getur verið fyrirboði kransæðastíflu. Stöðugur verkur fyrir brjósti e.t.v. með ógleði og kaldsvita sem getur verið einkenni um bráðakransæðastíflu og krefst tafarlausrar meðferðar. Yfirlið eða meðvitundarleysi.“[i] En konur lýsa stundum einkennum sem tengjast kransæðastíflu þannig að þær upplifa óútskýrðan slappleika eða þreytu, óeðlilegt kvíðakast eða verða taugaóstyrkar.Ein helsta dánarorsök kvenna Það er staðreynd að í dag eru hjarta- og æðasjúkdómar ein helsta dánarorsök kvenna og að með forvörnum má minnka líkurnar verulega. Eftir áralangar rannsóknir á áhættuþáttum hjartasjúkdóma hjá konum vitum við að: Reykingar auka líkur á hjartasjúkdómum. Áhættan er því minni ef þú reykir ekki. Hreyfing er mikilvæg. Hálftími á hverjum degi gerir gæfumuninn og þá er einnig gott að finna sér þá hreyfingu sem manni finnst skemmtilegust til að auka líkurnar á að hún verði hluti af daglegri rútínu. Leggja þarf áherslu á hollt matarræði og fylgjast með ráðleggingum þar um til að halda kjörþyngd eða sem næst því. Gott getur verið fá aðstoð fagfólks við að hafa stjórn á mataræði en þyngdaraukning og fitusöfnun eru þættir sem nauðsynlegt er að fylgjast með. Þá er rétt að láta fylgjast reglubundið með heilsufari með því að mæla blóðþrýsting, kólesteról og blóðsykur. Þeir sem eru með ættarsögu um hjarta- og æðasjúkdóma eru í aukinni áhættu og ættu því að leggja enn ríkari áherslu á ofannefnd atriði. Þá er gott að leita sér aðstoðar ef þú finnur fyrir þunglyndi en eftir tíðahvörf finna fleiri konur fyrir þunglyndi. Rannsóknir benda til að það auki áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum. Forðumst streitu en kynnum okkur þá áhættu sem við búum við með tilliti til sjúkdóma og vinnum í því á allan mögulegan hátt að lifa lífinu þannig að það auki lífsgæði okkar. Lífið er yndislegt. Verum jákvæð og verndum okkur sjálf með því að stuðla að heilbrigðum lífsvenjum okkar og þeirra sem okkur er annt um. GoRed verður með viðburði næstu vikur til að kynna hjarta- og æðasjúkdóma hjá konum og hvetjum við alla til að fylgjast með þeim og hlusta á okkar fólk. [i]Tekið af upplýsingasíðu GoRed á Íslandi: http://www.hjarta.is/upplysingatorg/gored-fyrir-konur. Sótt 09.02.2016. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar