Leita hjálpar vegna fíknar í nefsprey Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 16. febrúar 2016 20:55
Vaxandi fjöldi fólks leitar til háls, nef - og eyrnalækna í hverjum mánuði vegna fíknar í nefdropa eða nefsprey. Notkun slíkra lyfja hefur aukist undanfarin ár. Læknir segir fæsta gera sér grein fyrir að droparnir geti verið ávanabindandi. Nefdropar eru ólyfseðilsskyldir en notkun þeirra hefur aukist undanfarin ár. Háls, nef- og eyrnalæknar verða í meira mæli varir við að fólk verði háð slíkum dropum. „Það rata hingað inn til mín í hverjum mánuði einstaklingar sem misnota nefdropa,“ segir Kristján Guðmundsson, háls-, nef- og eyrnalæknir. „Þannig að þetta er mjög vel þekkt vandamál. Fólk sem er kannski búið að misnota nefdropa í marga mánuði eða mörg ár, það er gjörsamlega háð dropunum og er með glas í vasanum og glas í bílnum og heima og í vinnunni. Það á það jafnvel til að vera að keyra þegar það stíflast og þurfa þá brenna þá inn í næsta apótek og fær sér við kassann.“Ekki á að nota dropana lengur en í viku Í fylgiseðlum nefdropa er varað við notkun lengur en í tíu daga í senn vegna hættu á bólgu í nefslímhúð. Bólgan leiðir til þess að slímhúðin verður ekki eins móttækileg fyrir lyfinu og kallar á stærri skammta til að framkalla æskileg áhrif. „En þegar þú ert búinn að nota þetta í tiltekinn tíma, kannski eina til tvær vikur, byrjar slímhúðin að bólgna eftir að dropaáhrifin hverfa,“ segir Kristján. „Þá verður slímhúðin þrútin í nefinu, nefið lokað og fólk getur eiginlega ekki unað við það. Þú færð svokallaða nefdropabólgu í nefið og við því er ekkert annað að gera en að hætta. En mörgum reynist það afar erfitt og ég hef hitt fólk sem er búið að taka nefdropa upp á hvern einasta dag í meira en ár.“ Fólk festist þannig í vítahring þar sem nefið sé stöðugt stíflað. „Ég held að fæstir hugsi þannig að þetta gæti verið eitthvað ávanabindandi,“ segir Kristján. „Það er alveg sjálfsagt að nota nefdropa þegar maður er alveg kolstíflaður af kvefi en þá á bara að nota í nokkra daga, helst ekki lengur en í viku. Og þú átt að passa þig ef þú ert kominn yfir það, að halda ekki áfram.“
Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Sjá meira