Enski boltinn

Terry missir af leiknum gegn Man. City

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Terry haltrar af velli um síðustu helgi.
Terry haltrar af velli um síðustu helgi. vísir/getty
Chelsea hefur staðfest að John Terry verði ekki með liðinu í bikarslagnum gegn Man. City á sunnudag.

Terry meiddist í leik Chelsea um síðustu helgi og gat af þeim sökum ekki spilað gegn PSG í Meistaradeildinni á þriðjudag.

Hann er ekki enn orðinn góður og það verður því einhver bið á því að hann leiki sinn 700. leik fyrir félagið.

„Ég sá hann í morgun en hann var þá í meðferð hjá sjúkraþjálfurunum. Hann verður ekki orðinn góður fyrir leikinn um helgina,“ sagði Guus Hiddink, stjóri Chelsea.

Terry ætti þó að vera orðinn góður er Chelsea spilar gegn Southampton þann 27. febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×