Tilgerðarleikarnir? Halla Sif Svansdóttir skrifar 2. febrúar 2016 14:55 „Við lestur á útgefnum stefnuskrám fylkinganna tveggja verður ekki ljóst hvaða málefni það eru sem helst skilja fylkingarnar að. Í flestum efnum virðast markmiðin vera svipuð.“ „Það er einn helsti veikleikinn á starfi [Stúdentaráðs] að umbjóðendurnir fylgjast illa með því sem þar fer fram.“ Þessar tilvitnanir hér að ofan gætu allt eins verið dregnar úr umfjöllun um Stúdentaráðskosningar í ár, en birtust reyndar árið 1988 í Morgunblaðinu þegar Röskva bauð sig fyrst fram, sameinuð úr tveimur stúdentafylkingum, gegn Vöku. Hefur þá ekkert breyst í tæp 28 ár? Auðvitað hefur Stúdentaráð breytt mörgu innan Háskólans og bætt hag nemenda. Ásetningur minn hér er svo sannarlega ekki að tíunda ódauðlegu rununa um byggingu stúdentagarða og Stúdentakjallarans, framfarir í Lánasjóðsmálum eða framkvæmd Októberfest né að upphefja fylkinguna mína með því að eigna henni fyrrnefnd atriði. Stúdentaráð bætir frá ári til árs hverri fjöðrinni í yfirfullann hattinn og flestir stúdentaráðsliðar gefa tíma sinn óspart í þágu ráðsins og nemenda. Þó hafa margir nemendur Háskólans ekki mjög jákvæða mynd af ráðinu sem kemur beint niður á trúverðugleika þess. Til að tala undir rós þá virðast margir nemendur Háskólans ekki hafa mjög háleita mynd af því hvernig kjör fulltrúa til setu í ráðinu fer fram og hreinskilnislega sagt þá finnst mörgum nemendum kosningabarátta fylkinganna tilgerðarleg vinsældarkosning. Síðustu 28 ár hafa stefnumál fylkinganna þótt keimlík og jafnvel er hugmyndafræðin að baki þeim það einnig. Ef önnur fylkingin fær svo frábæra hugmynd sem hin fékk ekki, myndi vafalaust seinheppna fylkingin þó blessunarlega bjóðast til að hrinda henni í framkvæmd þegar sigurinn yrði í höfn. Í kosningunum etja nefnilega fylkingarnar einna helst kappi í markaðssetningu. Lítið þarf til að gera sömu hugmyndina örlítið sykursætari með dass af réttri grafík og orðalagi. Grípandi framsetning á stefnumálum og frambjóðendum, öflug kynningarstarfsemi í bland við ofpeppaða kappsemi stuðlar að því að yfir tveggja vikna tímabil fer tilvist Stúdentaráðs, til tilbreytingar, ekki framhjá neinum. Þegar ringlaðir kjósendur spyrja svo hver sé munurinn á fylkingunum hömrum við á eigin ágæti og hefjum svo samstarfsmöguleika fylkinganna til skýjanna. Með lítið um ágreiningsmál getum við starfað náið saman auk þess sem samkeppni fylkinganna stuðli að öflugri hagsmunabaráttu. Í sjálfu sér er þetta rétt auk þess sem áherslur og forgangsröðun fylkinganna eru að einhverju leyti ólík. En eftir 28 ár af sömu gagnrýni á tilgerðarleika fylkinganna getum við ekki lengur skýlt okkur á bakvið ógrynni stefnumála né það starf sem þegar hefur áunnist. Það má alltaf gera betur. Í eðli sínu starfar Stúdentaráð fyrst og fremst sem málsvari og hagsmunaafl nemenda. Þegar ímynd ráðsins er gagnrýnd frá ári til árs sem tilgerðarleg eða fráhrindandi verðum við að hlusta á og bregðast við gagnrýnisröddum þeirra sem við berum umboð fyrir. Breytingar gætu falist í breyttu kosningafyrirkomulagi, hugmyndum um lengra kjörtímabil eða sanngjarnara starfshlutfalli á milli fylkinganna á skrifstofu Stúdentaráðs. Það eru margir valmöguleikar sem hægt er að skoða samhliða því að viðhalda því góða í starfi síðustu ára. Röskva vill leiða skilvirkt Stúdentaráð sem leggur áherslu á samvinnu fylkinganna, nemenda, nemendafélaga og starfsmanna Háskólans. Með bætta ímynd ráðsins að leiðarljósi ættum við að geta drullast til að bæta starfshætti ráðsins og styrkt fúna innviði þess. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið „Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Ég hef borgað í áratugi af húsnæðisláni en skulda samt Sigurður H. Einarsson Skoðun Vöknum, foreldrar, afar og ömmur! Jón Pétur Zimsen Skoðun Á nú að hafa af manni fullveldið? Eiríkur Hjálmarsson Skoðun Óttinn við nei-ið Gunnar Ármannsson Skoðun Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun Glæpahundurinn Jónatan Ljónshjarta Heimir Eyvindarson Skoðun Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Hver er raunmæting íslenskra grunnskólanema? Ragnheiður Stephensen Skoðun Um siðferði og veiði Runólfur Ágústsson Skoðun Skoðun Skoðun Samfélagið treystir á öfluga fráveitu Brynja Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Heiðarleiki og raunhæfar lausnir Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Sundlaugar Reykjavíkur þurfa málefnalega pólitíska umræðu Brá Guðmundsdóttir,Björn Berg Pálsson,Drífa Magnúsdóttir,Ellen Elísabet Bergsdóttir,Hafliði Páll Guðjónsson,Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir,Snorri Örn Arnaldsson,Vala Bjarney Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að vera rétt tengdur eða bara „íbúi“? Guðrún M. Njálsdóttir skrifar Skoðun Um siðferði og veiði Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Bærinn okkar allra - Af hverju skiptir hann máli? Ester Bíbí Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samgöngur sem virka fyrir Hafnarfjörð Signý Jóna Tryggvadóttir skrifar Skoðun Þegar lögbundin réttindi skila sér ekki til barna og ungmenna Fjóla María Ágústsdóttir,Þóra Björg Jónsdóttir skrifar Skoðun Að kaupa burt vandann Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Á nú að hafa af manni fullveldið? Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun ,,En fatlað fólk er svo dýrt!’’ Steinar Bragi Sigurjónsson skrifar Skoðun Óttinn við nei-ið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Svartfuglavilla í Ráðhúsinu: Þegar flokkssystkinin klappa hvert öðru á bakið á kostnað útsvarsins og hækkaðra gjalda Davíð Bergmann skrifar Skoðun Gervigreind og fullveldi Linda Heimisdóttir,Vilhjálmur Þorsteinsson skrifar Skoðun „Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Vöknum, foreldrar, afar og ömmur! Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Glæpahundurinn Jónatan Ljónshjarta Heimir Eyvindarson skrifar Skoðun Ég hef borgað í áratugi af húsnæðisláni en skulda samt Sigurður H. Einarsson skrifar Skoðun Bestum borgina með fólkið í forgrunni Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Velferðin og valkyrjurnar Rósalind Signýjar Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Um stafrænt skólaumhverfi barna í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir skrifar Skoðun Fögnum úrbótum án afslátta Jóna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsgróðurhús Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Berglind Ósk Guttormsdóttir,Halldór Grétar Einarsson,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Hver er raunmæting íslenskra grunnskólanema? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Áhrifum fylgir ábyrgð Ása Valdís Árnadóttir skrifar Skoðun Að kljúfa þjóð í herðar niður Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Borgarlína eða lífæð? Við erum að velja vitlaust Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Rósin hefur ekki sagt sig úr flokknum aðeins úr Fulltrúaráði hans í Reykjavík Birgir Dýrfjörð skrifar Sjá meira
„Við lestur á útgefnum stefnuskrám fylkinganna tveggja verður ekki ljóst hvaða málefni það eru sem helst skilja fylkingarnar að. Í flestum efnum virðast markmiðin vera svipuð.“ „Það er einn helsti veikleikinn á starfi [Stúdentaráðs] að umbjóðendurnir fylgjast illa með því sem þar fer fram.“ Þessar tilvitnanir hér að ofan gætu allt eins verið dregnar úr umfjöllun um Stúdentaráðskosningar í ár, en birtust reyndar árið 1988 í Morgunblaðinu þegar Röskva bauð sig fyrst fram, sameinuð úr tveimur stúdentafylkingum, gegn Vöku. Hefur þá ekkert breyst í tæp 28 ár? Auðvitað hefur Stúdentaráð breytt mörgu innan Háskólans og bætt hag nemenda. Ásetningur minn hér er svo sannarlega ekki að tíunda ódauðlegu rununa um byggingu stúdentagarða og Stúdentakjallarans, framfarir í Lánasjóðsmálum eða framkvæmd Októberfest né að upphefja fylkinguna mína með því að eigna henni fyrrnefnd atriði. Stúdentaráð bætir frá ári til árs hverri fjöðrinni í yfirfullann hattinn og flestir stúdentaráðsliðar gefa tíma sinn óspart í þágu ráðsins og nemenda. Þó hafa margir nemendur Háskólans ekki mjög jákvæða mynd af ráðinu sem kemur beint niður á trúverðugleika þess. Til að tala undir rós þá virðast margir nemendur Háskólans ekki hafa mjög háleita mynd af því hvernig kjör fulltrúa til setu í ráðinu fer fram og hreinskilnislega sagt þá finnst mörgum nemendum kosningabarátta fylkinganna tilgerðarleg vinsældarkosning. Síðustu 28 ár hafa stefnumál fylkinganna þótt keimlík og jafnvel er hugmyndafræðin að baki þeim það einnig. Ef önnur fylkingin fær svo frábæra hugmynd sem hin fékk ekki, myndi vafalaust seinheppna fylkingin þó blessunarlega bjóðast til að hrinda henni í framkvæmd þegar sigurinn yrði í höfn. Í kosningunum etja nefnilega fylkingarnar einna helst kappi í markaðssetningu. Lítið þarf til að gera sömu hugmyndina örlítið sykursætari með dass af réttri grafík og orðalagi. Grípandi framsetning á stefnumálum og frambjóðendum, öflug kynningarstarfsemi í bland við ofpeppaða kappsemi stuðlar að því að yfir tveggja vikna tímabil fer tilvist Stúdentaráðs, til tilbreytingar, ekki framhjá neinum. Þegar ringlaðir kjósendur spyrja svo hver sé munurinn á fylkingunum hömrum við á eigin ágæti og hefjum svo samstarfsmöguleika fylkinganna til skýjanna. Með lítið um ágreiningsmál getum við starfað náið saman auk þess sem samkeppni fylkinganna stuðli að öflugri hagsmunabaráttu. Í sjálfu sér er þetta rétt auk þess sem áherslur og forgangsröðun fylkinganna eru að einhverju leyti ólík. En eftir 28 ár af sömu gagnrýni á tilgerðarleika fylkinganna getum við ekki lengur skýlt okkur á bakvið ógrynni stefnumála né það starf sem þegar hefur áunnist. Það má alltaf gera betur. Í eðli sínu starfar Stúdentaráð fyrst og fremst sem málsvari og hagsmunaafl nemenda. Þegar ímynd ráðsins er gagnrýnd frá ári til árs sem tilgerðarleg eða fráhrindandi verðum við að hlusta á og bregðast við gagnrýnisröddum þeirra sem við berum umboð fyrir. Breytingar gætu falist í breyttu kosningafyrirkomulagi, hugmyndum um lengra kjörtímabil eða sanngjarnara starfshlutfalli á milli fylkinganna á skrifstofu Stúdentaráðs. Það eru margir valmöguleikar sem hægt er að skoða samhliða því að viðhalda því góða í starfi síðustu ára. Röskva vill leiða skilvirkt Stúdentaráð sem leggur áherslu á samvinnu fylkinganna, nemenda, nemendafélaga og starfsmanna Háskólans. Með bætta ímynd ráðsins að leiðarljósi ættum við að geta drullast til að bæta starfshætti ráðsins og styrkt fúna innviði þess.
„Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun
Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun
Skoðun Sundlaugar Reykjavíkur þurfa málefnalega pólitíska umræðu Brá Guðmundsdóttir,Björn Berg Pálsson,Drífa Magnúsdóttir,Ellen Elísabet Bergsdóttir,Hafliði Páll Guðjónsson,Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir,Snorri Örn Arnaldsson,Vala Bjarney Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Þegar lögbundin réttindi skila sér ekki til barna og ungmenna Fjóla María Ágústsdóttir,Þóra Björg Jónsdóttir skrifar
Skoðun Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum? Einar Jóhannes Guðnason skrifar
Skoðun Svartfuglavilla í Ráðhúsinu: Þegar flokkssystkinin klappa hvert öðru á bakið á kostnað útsvarsins og hækkaðra gjalda Davíð Bergmann skrifar
Skoðun „Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir skrifar
Skoðun Samfélagsgróðurhús Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Berglind Ósk Guttormsdóttir,Halldór Grétar Einarsson,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Rósin hefur ekki sagt sig úr flokknum aðeins úr Fulltrúaráði hans í Reykjavík Birgir Dýrfjörð skrifar
„Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun
Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun