Kæra Katrín Jakobsdóttir Þorvaldur Þorvaldsson skrifar 9. febrúar 2016 07:00 Sæl vertu, Katrín, og takk fyrir svarið í Fréttablaðinu 2. febrúar. Það olli mér hins vegar nokkrum vonbrigðum að þú skyldir ekki svara spurningu minni sem var skýr, hvort VG styddi eða væri á móti viðskiptabanninu gagnvart Rússlandi. Almennur fyrirvari segir lítið um það. Mitt mál fól alls ekki í sér að VG bæri ábyrgð á utanríkisstefnu Íslands. Hins vegar verða allir að bera ábyrgð á sinni afstöðu. Og líka á því að taka ekki afstöðu. Stjórnmálabaráttan hlýtur að snúast um að sameinast um málstað sem er undirstaða fyrir afstöðu til mikilvægra mála. Það er lítið gagn í því að velta bara vöngum og láta svo kylfu ráða kasti þegar til þess kemur að taka ákvarðanir, eins og dæmin sanna.Heildarmyndin Ég tek undir með þér að horfa verður á heildarmyndina og það taldi ég mig gera í mínu bréfi. Það felur líka í sér að leggja alla þætti á vogarskálarnar en ekki bara einstaka útvalda. Endursameining Krímskaga við Rússland var ekki alvarlegasta brot gegn fullveldi þjóða í þessu máli. Það var hins vegar valdaránið í Úkraínu í febrúar 2014, sem einmitt svokölluð „samstaða vestrænna ríkja“ stóð á bak við. Samstaða vestrænna ríkja er einmitt eitt af gælunöfnum heimsvaldastefnu Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Heildarmyndin af framvindunni í Úkraínu og Rússlandi er nægilega skýr til að taka afstöðu til réttmætis viðskiptabannsins. Vinstrafólki ber skylda til að berjast gegn heimsvaldastefnunni, sem hefur farið eldi og brennisteini um flesta heimshluta undanfarna áratugi. Barátta gegn heimsvaldastefnunni er eina leiðin til friðsamlegra og sanngjarnra lausna á alþjóðamálum. Í ljósi þessa vona ég að þú skoðir hug þinn betur og takir efnislega afstöðu til málsins. Ef þú færð flokkinn til að sameinast um andstöðu við viðskiptabannið mun hann styrkjast og hugsanlega skapast möguleiki á samstöðu milli Alþýðufylkingarinnar og VG í því máli, og jafnvel fleirum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Sjá meira
Sæl vertu, Katrín, og takk fyrir svarið í Fréttablaðinu 2. febrúar. Það olli mér hins vegar nokkrum vonbrigðum að þú skyldir ekki svara spurningu minni sem var skýr, hvort VG styddi eða væri á móti viðskiptabanninu gagnvart Rússlandi. Almennur fyrirvari segir lítið um það. Mitt mál fól alls ekki í sér að VG bæri ábyrgð á utanríkisstefnu Íslands. Hins vegar verða allir að bera ábyrgð á sinni afstöðu. Og líka á því að taka ekki afstöðu. Stjórnmálabaráttan hlýtur að snúast um að sameinast um málstað sem er undirstaða fyrir afstöðu til mikilvægra mála. Það er lítið gagn í því að velta bara vöngum og láta svo kylfu ráða kasti þegar til þess kemur að taka ákvarðanir, eins og dæmin sanna.Heildarmyndin Ég tek undir með þér að horfa verður á heildarmyndina og það taldi ég mig gera í mínu bréfi. Það felur líka í sér að leggja alla þætti á vogarskálarnar en ekki bara einstaka útvalda. Endursameining Krímskaga við Rússland var ekki alvarlegasta brot gegn fullveldi þjóða í þessu máli. Það var hins vegar valdaránið í Úkraínu í febrúar 2014, sem einmitt svokölluð „samstaða vestrænna ríkja“ stóð á bak við. Samstaða vestrænna ríkja er einmitt eitt af gælunöfnum heimsvaldastefnu Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Heildarmyndin af framvindunni í Úkraínu og Rússlandi er nægilega skýr til að taka afstöðu til réttmætis viðskiptabannsins. Vinstrafólki ber skylda til að berjast gegn heimsvaldastefnunni, sem hefur farið eldi og brennisteini um flesta heimshluta undanfarna áratugi. Barátta gegn heimsvaldastefnunni er eina leiðin til friðsamlegra og sanngjarnra lausna á alþjóðamálum. Í ljósi þessa vona ég að þú skoðir hug þinn betur og takir efnislega afstöðu til málsins. Ef þú færð flokkinn til að sameinast um andstöðu við viðskiptabannið mun hann styrkjast og hugsanlega skapast möguleiki á samstöðu milli Alþýðufylkingarinnar og VG í því máli, og jafnvel fleirum.