Malmö býður í Viðar Örn Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. janúar 2016 22:06 Viðar Örn Kjartansson er líklega á förum frá Kína. vísir/epa
Sænska úrvalsdeildarliðið Malmö hefur lagt fram kauptilboð í landsliðsframherjann Viðar Örn Kjartansson, að því fram kemur í frétt á vef sænska dagblaðsins Expressen. Selfyssingurinn var í morgun orðaður við danska félagið AGF. Það má lesa meira um það hér. Viðar er samningsbundinn kínverska félaginu Jiangsu Sainty í eitt ár til viðbótar, en hann er talinn á leið frá félaginu. Expressen fullyrðir að Malmö sé búið að gera Kínverjunum tilboð í Viðar Örn, en umboðsmaður hans, Ólafur Garðarsson, vildi ekkert staðfesta við blaðið. „Það eru félög í Svíþjóð sem hafa áhuga en meira segi ég ekki að svo stöddu,“ segir Ólafur. Malmö ætlar sér, samkvæmt frétt Expressen, að kaupa tvo framherja til að bólstra sóknarleik sinn. Sænski framherjinn Gustaf Nilsson hafnaði tilboði Malmö á dögunum og fór frá Falkenberg til Bröndby í Danmörku. Viðar þekkir það að spila á Norðurlöndum, en hann varð markakóngur í norsku úrvalsdeildinni árið 2014 þegar hann skoraði 25 mörk í 29 leikjum. Selfyssingurinn, sem komst fyrir alvöru til metorða hjá Fylki í Pepsi-deildinni 2013, skoraði níu mörk í 22 leikjum fyrir Jiangsu Sainty á síðustu leiktíð og varð bikarmeistari. Með Malmö spilar landsliðsmiðvörðurinn Kári Árnason. Malmö er í dag eitt allra stærsta liðið á Norðurlöndum.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Fleiri fréttir Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Sjá meira