Ætlarðu að kaupa banka? Ef já, hvernig fannstu verðið? ársæll valfells skrifar 27. janúar 2016 09:00 Í bókum um verðmat fyrirtækja er ekki óalgengt að rekast á setningar á borð við „Banks are among the most complex businesses to value, especially from the outside in“. Þó ársreikningar banka gefi einhverja mynd af rekstri, eignum og skuldum stofnunarinnar þá ræðst skýrleiki reikninganna mest af reikningshaldslegum ákvörðunum sem stjórnendur bankans taka. Oft þarf þá að gefa sér forsendur og geta sér til um gjörðir stjórnenda til að geta myndað sér skoðun á hlutabréfaverði bankans. Bankar eru einnig með skuldsettustu fyrirtækjum sem til eru og gerir það því verðmat mjög næmt fyrir breytingum í ytra umhverfi og spár um framtíðarvirði óvissar. Enn fremur selja bankar margs konar þjónustu og því tekjumyndun oft ekki einhlít.Verð hlutabréfa banka hefur ekki farið varhluta af þeim óróa sem nú ríkir á hlutabréfamörkuðum. Hlutabréf Deutsche Bank hafa fallið um 40% frá byrjun árs 2015. Bresku bankarnir Barclays og RBS hafa fallið svipað. Hinn norski DNB sem hefur fallið um 11% og virðist olíutenging hagkerfana þar ráða för. Sænski Enskilda hefur haldið sjó frá áramótum en fallið um 20% frá fyrra ári. Danske Bank hefur haldið sjó frá upphafi árs og hefur reyndar hækkað í verði frá í fyrra um 6%. Framangreind vandkvæði í verðlagningu banka gera hvert stakt verðmat óáreiðanlegt. Því er mikilvægt að líta til hvernig markaður verðleggur skráða banka og að nota einfaldan kennitölusamanburð. Vandinn við kennitölusamanburðinn er að bankar eru oft sérhæfðir í útlánastarfsemi og því auðvelt að bera saman epli og appelsínur. Því standa menn oftar en ekki frammi fyrir því að reyna að byggja verðmat sitt á óskráðum banka með þeim rökum að skráði bankinn sé appelsína og hinn óskráði sé límóna en af sömu plöntuættkvísl. Kennitölusamanburður byggður á markaðsvirði sýnir okkur svartsýni eða bjartsýni fjárfesta á raunvirði bókfærðra eigna. Fjárfestar eru í dag svartsýnir á Deutsche Bank sem er með gildið 0,35 og Barclays með gildið 0,5. Fjárfestar meta DNB heilbrigðari með gildið 0,9. Danske Bank lítur hraustur út með 1,1 og hinn ofurhressi Enskilda með hlutfallið 1,3. Nú stöndum við frammi fyrir því að hugsanlega verða einn eða fleiri bankar skráðir í íslensku kauphöllina. Þeir eru nokkuð sérstakir fyrir þær sakir að nýlega er búið að endurskipuleggja eignahlið þeirra og eiginfjárstaða þeirra er há og rekstur nokkuð traustur líkt og kemur fram í síðasta riti Seðlabanka Íslands um fjármálastöðugleika. Þar kemur einnig fram að fjármögnun þeirra nú er mest í innlánum, innan hafta og einsleit. Helsta áskorunin fyrir íslensku bankana verður að aðlaga sig að nýju fjármögnunarumhverfi „eftir“ höft. Þegar kemur að því að verðmeta íslenska banka er spurningin sem fjárfestar þurfa að spyrja sig því þessi: Ef órói ríkir áfram á erlendum fjármálamörkuðum, hvernig mun íslensku bönkunum ganga að sækja sér fé alþjóðlega í framhaldinu? Svar við því ræður því hvort niðurstaðan verður mandarína eða mögulega dúrían.Hlutabréfaverð í bönkum hefur ekki farið varhluta af þeim óróa sem nú ríkir á hlutabréfamörkuðum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar