Dönsk táningsstúlka dæmd í níu ára fangelsi fyrir morð á móður sinni Atli Ísleifsson skrifar 28. janúar 2016 12:58 Bakhtiar Mohammed Abdullah hlaut þrettán ára dóm, en Lisa Borch níu ára dóm. mynd/instagram
Landsréttur í Álaborg staðfesti í morgun dóm héraðsdóms yfir danskri táningsstúlku og íröskum vini hennar fyrir morð á móður stúlkunnar á Jótlandi árið 2014. Hin sextán ára Lisa Borch hlaut níu ára dóm, en hinn 29 ára Bakhtiar Mohammed Abdullah þrettán ára dóm auk þess að honum verður vísað úr landi að afplánun lokinni. Þau Borch og Abdullah foru dæmd fyrir morðið á fertugri móður Borch, Tine Rømer Holtegaard, en hún lést af völdum sára sem hún hlaut vegna um tuttugu hnífstungna þar sem hún lá sofandi í rúmi á heimili sínu í Kvissel á Norður-Jótlandi þann 8. október 2014.Ætluðu sér að ganga í hjónabandÍ frétt DR segir að í dómum komi fram að þau hafi verið kærustupar og ætlað sér að ganga í hjónaband. Móðir Boorch hafi hins vegar verið mjög mótfallin ráðahagnum. Saksóknari fór fram á dómurinn yfir þeim yrði þyngdur þar morðið hafi verið skipulagt, kaldrifjað og grimmdarlegt. Verjandi Abdullah sagði að milda ætti dóminn vegna stöðu Abdullah sem flóttamaður, auk þess að hann hafi þjáðst af áfallasteituröskun vegna erfiðra uppvaxtarára. Verjandi Borch sagði að milda ætti dóminn yfir henni vegna ungs aldurs. Þau Borch og Abdullah voru jafnframt dæmd til að greiða allan málskostnað, auk þess að stúlkan missir rétt sinn til arfs.Gjörólík tvíburasystur sinniDanska blaðið BT ræddi við eiginmann hinnar látnu og stjúpföður Lisu, Jens Holtegaard, eftir að dómur féll í Álaborg í september. Sagði hann að Lisa hafi lent í slæmum félagsskap og umturnast mánuðina fyrir morðið eftir að hafa hafið störf á veitingastað í Frederikshavn þar sem hún hafi kynnst Abdullah. Þá lýsir hann henni sér sérstaklega undirförulli og gjörólíkri tvíburasystur sinni sem einnig bjó á heimilinu.Grunsamleg hegðunLisa hringdi sjálf á lögreglu og tilkynnti að hún hafi komið að móður sinni útaðtaðri í blóði. Hún var ein í húsinu þegar lögregla mætti á vettvang en var handtekin nokkru síðar eftir að lögregla fann engin merki þess að brotist hafi verið inn í húsið. Þá þótti hegðun hennar grunsamleg og lýstu bæði lögreglumenn og sjúkralið því að hún hafi verið bæði róleg og köld í fasi.Hringdi á leigubíl áður en hringt var í neyðarlínuna Nokkrum klukkustundum síðar var Abdullah handtekinn vegna gruns um aðild að morðinu. Í yfirheyrslum skiptust þau Lisa og Abdullah á að saka hvort annað um að hafa borið ábyrgð á dauða Tinu. Í dómnum segir að blóð úr Tinu hafi fundist í fötum Abdullah og upplýsingar úr síma Lisu sýndu fram á að hún hafi hringt í leigubíl fyrir Abdullah og í fleiri vini sína, áður en hún hringdi í neyðarlínuna. Þá þykir ljóst að Lisa hafi ekki veitt móður sinni fyrstu hjálp líkt og starfsmaður Neyðarlínunnar skipaði henni að gera.
Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira