Kolsvart útlit á markaði 2. janúar 2016 12:00 Teitur Gylfason, sölustjóri hjá Iceland Seafood
sjávarútvegur Söluhorfur á loðnuafurðum, bæði á heilfrystri loðnu og loðnuhrognum, eru mjög dökkar vegna viðskiptabanns Rússa. Betur gekk en útlit var fyrir að finna ný markaðslönd fyrir hluta af þeim makríl sem eyrnamerktur var Rússum. „Það er verulegt áhyggjuefni hvernig sala á loðnu og loðnuhrognum mun þróast. Rússland og Hvíta-Rússland eru þar afar mikilvægir markaðir, og engir aðrir markaðir koma í staðinn fyrir þá,“ segir Teitur Gylfason, sölustjóri hjá Iceland Seafood. Í sumar voru helstu áhyggjurnar af sölu á makríl. Leitin að kaupendum gekk vonum framar, að sögn Teits, sem telur þó að enn meira hafi verið brætt af makríl en hann átti von á, enda markaðir sterkir fyrir mjöl og lýsi. „Mér sýnist að það hafi verið framleitt mun minna af frosnum makrílafurðum á síðustu vertíð en árin á undan, sem stafar af því að menn nýttu rýmri heimildir til bræðslu.“ „En það gekk betur að selja makríl til Afríku en menn áttu von á. Þetta er t.d. Fílabeinsströndin, Gana, Gabon og Benín. En frá þessum löndum fer hann vísast víðar. Síðan seldum við verulegt magn til Tyrklands og Mið-Asíu. Makríll er þekktur matfiskur um allan heim og ekki endilega mjög flókið að kynna hann nýjum kaupendum. Það er fyrst og síðast spurningin um verð, sem hefur lækkað verulega.“ Teitur segir að makríllinn hafi helst verið í brennidepli varðandi markaðsmálin í Rússlandi, og það þrátt fyrir að markaðurinn með loðnu sé eins viðkvæmur og raun ber vitni. Loðnuhrogn hafi t.d. skilað gríðarlegum verðmætum inn í samfélagið. „Síðan hefur verð á sjófrystum karfa snarfallið, en Rússland var langmikilvægasti markaðurinn fyrir þá afurð. En menn láta eins og þetta sé ekkert mál af því að makríllinn seldist. Ef við værum með stóra síldarkvóta værum við í miklum vandræðum því Rússland er langmikilvægasti síldarmarkaður í heimi. Það má ekki gleyma því að Rússland er eitt fjölmennasta ríki heims og fiskneysla er óvíða meiri,“ segir Teitur og bætir við að það sé sérstakt áhyggjuefni að ekki sé hægt að koma karfa í verð; hann hafi verið seldur héðan um allan heim um og eftir 1980 og því þekkt vara. Samt sé engin eftirspurn eftir karfa. svavar@frettabladid.is fréttablaðið/óskar
Mest lesið Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Hætta á að Gjögurtáarviti falli í sjóinn Innlent Maðurinn bak við Stokkhólmseinkennið allur Erlent „Fyrir vikið er flokkurinn á hverfandi hveli“ Innlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Fínasta grillveður í kortunum Innlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira