Innlent

Jólafríið 2016 vinnur enga vinsældakeppni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Á meðan fjölmargir nutu tveggja fjögurra daga helga þessa hátíðina er útlitið ekki jafngott fyrir næstu jól og áramót.
Á meðan fjölmargir nutu tveggja fjögurra daga helga þessa hátíðina er útlitið ekki jafngott fyrir næstu jól og áramót. Vísir/Egill Aðalsteinsson
Nú þegar landsmenn flestir eru mættir aftur til vinnu eftir það sem vonandi hefur reynst flestum ágætt frí yfir jól og áramót er ekki úr vegi að líta fram á veginn. Á meðan fjölmargir nutu tveggja fjögurra daga helga þessa hátíðina er útlitið ekki jafngott fyrir næstu jól og áramót.

Á nýliðnu ári lentu aðfangadagur og jóladagur á fimmtudegi og föstudegi. Þar sem slétt vika er á milli 24. desember og 31. desember lentu gamlársdagur og nýársdagur sömuleiðis á fimmtudegi og föstudegi. Úr urðu tvær fjögurra daga helgar.

Með því að taka sér frí dagana 28. - 30. desember var hægt að búa til ellefu daga frí sem vafalítið margir sem áttu inni frídaga nýttu sér.

Fyrrnefndir hátíðisdagar, og frídagar fyrir flesta landsmenn, hafna hins vegar á laugardegi og sunnudegi í ár. Aðfangadagur og gamlársdagur á laugardegi og jóladagur og nýársdagur á sunnudegi.  Annar í jólum er á mánudegi þannig að fyrri helgin verður þriggja daga en annars má með réttu kalla komandi hátíð jól atvinnurekenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×