Innlent

Þrír með fölsuð skilríki

Birgir Olgeirsson skrifar
Úr flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Úr flugstöð Leifs Eiríkssonar. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á Suðurnesjum hefur þrjú mál til rannsóknar sem varða framvísun falsaðra skilríkja í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að einn einstaklingur framvísaði ísraelsku vegabréfi sem reyndist vera breytifalsað. Annar framvísaði breytifölsuðu ítölsku vegabréfi, svo og ólöglega útgefnu ítölsku kennivottorði. Þriðji aðilinn framvísaði einnig breytifölsuðum skilríkjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×