Innlent

Íslenskur drengur braut í sér tönn við að bíta í brauðstöng

Jakob Bjarnar skrifar
Egill Þorsteinsson hjá markaðsdeild Dominos l segir um leiðindaatvik að ræða og fyrirtækið vilji ganga í að greiða þann skaða sem drengurinn varð fyrir.
Egill Þorsteinsson hjá markaðsdeild Dominos l segir um leiðindaatvik að ræða og fyrirtækið vilji ganga í að greiða þann skaða sem drengurinn varð fyrir. Vísir/Valli
Drengur nokkur á höfuðborgarsvæðinu beit svo hraustlega í brauðstöng frá Domino‘s að við það brotnaði tönn í munni hans. Hann setti sig í samband við Domino‘s sem brást skjótt við og pantaði tíma hjá tannlækni fyrir drenginn. Og hyggst sjá um reikninginn.

„Nei, við erum ekki með neinn sérstakan tannlækni á okkar vegum,“ segir Egill Þorsteinsson hjá markaðsdeild Domino‘s. „Það er ekki svo að við séum með tannlækni í vinnu hjá okkur.“

Egill segir þetta hins vegar leiðindaatvik og fyrirtækið vilji ganga í að greiða þann skaða sem drengurinn varð fyrir.

Svo hressilega beit drengurinn í brauðstöngina að tönn í kjapti hans brotnaði .
Harðar brauðstangir?

En, hvernig er það, eru þetta svona harðar brauðstangir sem Domino‘s býður uppá? Nei, Egill vill nú ekki meina það, brauðstangirnar eru einmitt mjúkar en ekki liggur nákvæmlega hvað olli þessu en það er verið að skoða það.

Að drengurinn hafi þá jafnvel verið svona illa tenntur?

„Það geta alltaf einhver slys gerst. En, maður veit ekki. Það er verið að meta þetta,“ segir Egill.

Þessi þjónusta Domino‘s hlýtur að verða að teljast harla góð, að bregðast svo skjótt við með þessum hætti. „Við reynum að standa okkur og ef viðskiptavinir okkar verða fyrir einhverjum skaða sem hugsanlega má rekja til okkar, þá viljum við bæta það, innan skynsamlegra marka,“ segir Egill.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×