Innlent

Tollurinn lagði hald á um 48 kíló af fíkniefnum á síðasta ári

Atli Ísleifsson skrifar
Lögregla í viðkomandi umdæmum hefur farið með rannsókn málanna.
Lögregla í viðkomandi umdæmum hefur farið með rannsókn málanna. Vísir/Anton
Tollverðir stöðvuðu um 47,6 kíló af fíkniefnum sem smygla átti til landsins á nýliðnu ári. Þar að auki var lagt hald á 209.600 e-töflur.

Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum frá tollstjóraembættinu en inni í þessum tölum eru haldlagningar fíkniefna á landamærum en ekki haldlagningar lögreglu innanlands.

„Af ofangreindu magni fíkniefna voru um um 20,6 kíló e-duft, rúm níu kíló af amfetamíni, rúm níu kíló af kókaíni og rúm átta kíló af hassi. Til viðbótar var tekið minna magn af öðrum fíkniefnum svo sem af metamfetamíni,“ segir í tilkynningu frá embættinu.

Á árinu 2014 stöðvuðu tollverðir samtals tæp 700 grömm af amfetamíni, 44 grömm af e-töfludufti, rúmlega 1,3 kíló af kókaíni og tæpt kíló af hassi, auk annarra tegunda fíkniefna svo sem LSD og MDMA-vökva.

„Ljóst er að þarna er um stórfellda aukningu á haldlagningu fíkniefna að ræða milli ára.  Lögregla í viðkomandi umdæmum hefur farið með rannsókn málanna,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×