Varð af tíu milljóna króna vinningi í HHÍ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 21. nóvember 2016 15:56 Ekki var hægt að skuldfæra kortið í tæka tíð. Vísir/Vilhelm
Maður sem höfðaði mál gegn Happdrætti Háskóla Íslands eftir að hafa ekki fengið tíu milljón króna vinning sem kom upp á miða í hans eigu sem ekki hafði verið greitt fyrir i tæka tíð, tapaði málinu fyrir Héraðsdóm fyrir helgi. Krafðist hann þess að fá vinninginn greiddan en þarf þess í stað að greiða 500 þúsund krónur í málskostnað. Þann 23. ágúst 2011 keypti maðurinn miða í Happdrætti Háskóla Íslands. Var miðinn „gildur frá og með næsta útdrætti og öllum útdráttum þaðan í frá á meðan greiðslusamningnum er ekki sagt upp af þinni hálfu og greiðsla berst til HHÍ fyrir viðkomandi úrdrátt.“ 10. október 2013 komu tíu milljónir á happdrættisnúmer mannsins. Nokkrum vikum áður, 17. september 2013, hafði Happdrættið gert tilraun til þess að skuldfæra greiðslukort mannsins fyrir útdráttinn í október. Ekki tókst að skuldfæra greiðslukortið þar sem notkun kortsins var komin umfram lánamörk þann mánuðinn. Færðist vinningurinn því yfir á næsta mánuð. Manninum varð kunnugt um þetta í árslok 2014 eða í mars 2015 og skömmu síðar gerði hann kröfu um Happdrætti Háskóla Íslands greiddi honum vinninginn. Taldi hann að HHÍ væri ekki heimilt að líta svo á að númerið væri ekki gilt í útdrættinum. HHÍ hafnaði kröfunni og höfðaði maðurinn því mál gegn HHÍ. Taldi maðurinn að hann ætti rétt á að númerin hans væru með í öllum útdráttum stefnda þar til honum yrði sannarlega tilkynnt um að áskrift hans hefði verið sagt upp eða henni rift með öðrum formlegum hætti. Þá taldi hann einnig að HHÍ hefði látið undir höfuð leggjast að láta hann vita að greiðsla fyrir miðann hafi borist. Hann hefði því ekki geta vitað að greiðsla hafi ekki borist. Maðurinn byggði mál sitt einnig á því að HHÍ hélt áfram að skuldfæra greiðslur á greiðslukorti sínu fyrir næsta útdrátt eftir og gert það allar götur síðan, án tilkynningar eða útskýringa. Taldi hann að af því mætti leiða að samningur aðila var í gildi þegar útdráttur í október 2013 fór fram. HHÍ bar því hins vegar við að engin skylda væru á herðum HHÍ að tilkynna þegar skuldfærslu er hafnað. HHÍ hélt því eining fram að greiðslusamningur um mánaðarlegar skuldfærslur felli ekki úr gildi skýran skilmála um að greiðsla verði að berast stefnda fyrir hvern útdrátt. Í dómi Héraðsdóms segir að HHÍ hafi borið að skuldfæra kreditkort stefnanda mánaðarlega fyrir endurnýjuninni. Því bar manninum að sjá til þess að unnt væri að skuldfæra téða greiðslu. Einnig segir að að ekki hafi verið samið svo um að stefnda hafi borið að reyna ítrekað að skuldfæra greiðsluna eða innheimta andvirði endurnýjunar með öðrum leiðum, svo sem að senda kröfu í heimabanka. Telja verður að það hafi verið umfram skyldu að stefndi tilkynnir að skuldfærsla á kreditkortið hafi mistekist. Skyldan hvíli á stefnda að hafa kort sitt innan lánamarka.Var HHÍ því sýknað af kröfu mannsins sem greiða þarf hálfa milljón í málskostnað.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Sjá meira