Justin Shouse verður áfram með Stjörnunni á næsta tímabili Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. maí 2016 22:48 Justin Shouse. Vísir/Anton
Stjörnumenn tilkynntu samninga við nær allt karlaliðið sitt í Domino´s deild karla í körfubolta í kvöld en þá var gengið frá samningum við tíu leikmenn liðsins. Einn af þeim sem skrifuðu undir nýjan samning við leikstjórnandinn Justin Shouse sem mun því spila sitt níunda tímabil í röð í Garðabænum og það tólfta á Íslandi. Fyrsta tímabil Justin Shouse með Stjörnunni var 2008-09 en hann hefur orðið þrisvar bikarmeistari með félaginu. Justin Shouse heldur upp á 35 ára afmælið sitt í haust en hann sýndi það í vetur þar sem hann var með 18,8 stig og 5,7 stoðsendingar að meðaltali í leik í Domino´s deildinni að hann hefur enn mikið fram að færa á körfuboltavellinum.Karfan.is sagði í kvöld frá samningum Körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar við þá Marvin Valdimarsson, Sæmund Valdimarsson, Ágúst Angantýsson, Brynjar Magnús Friðriksson, Egill Agnar Októsson, Óskar Þór Þorsteinsson, Justin Shouse, Arnþór Freyr Guðmundsson, Magnús Bjarka Guðmundsson og Grímkel Orra Sigþórsson. Tómas Þórður Hilmarsson er á leiðinni út í nám og verður því ekki með næsta vetur og þá er ekki ljóst hvort Al´lonzo Coleman verði áfram. Stjörnumenn höfðu krækt í einn nýjan leikmann en liðið fékk þá til sína Eystein Bjarna Ævarsson frá Hetti. Stjarnan endaði í 2. Sæti í deildarkeppninni á síðasta tímabili og vann deildarmeistara KR meðal annars tvisvar. Liðið datt síðan út í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar eftir oddaleik á móti Njarðvík.
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira