Davíð við Bjarna: "Kom þetta þér á óvart?" Viktoría Hermannsdóttir skrifar 8. maí 2016 11:15 Bjarni Benediktsson og Davíð Oddsson voru báðir gestir í Sprengisandi í morgun. Vísir/Ernir „
Nú þarftu að byrja á Facebook,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, við Davíð Oddsson, fyrrverandi formann flokksins og núverandi forsetaframbjóðenda þegar þeir mættust í húsakynnum Bylgjunnar nú fyrir stundu. Davíð var að koma úr viðtali á Sprengisandi þar sem hann tilkynnti um framboð sitt til forseta Íslands og Bjarni var á leið í viðtal í þættinum. Davíð spurði Bjarna út í viðbrögð hans við framboðinu er þeir mættust: „Kom þetta þér á óvart?“ spurði Davíð Bjarna. „Maður getur ekki neitað því, þú ert vanur að koma á óvart," svaraði Bjarni. Davíð tilkynnti um framboð sitt til embættis forseta Íslands í þættinum Sprengisandi í morgun. Þar sagðist hann ekki hafa íhugað framboðið lengi, aðeins væru örfáir dagar síðan hann fór að velta því fyrir og lokaákvörðunina hafi hann tekið í gær. Guðni og Davíð tókust í hendur er þeir mættust.Jóhann K. JóhannssonDavíð og Guðni Th. Johannesson mættust einnig í húsakynnum Bylgjunnar þar sem Guðni, sem einnig er í framboði til forseta Íslands, var næsti gestur í þættinum á eftir Davíð. Þeir tókust í hendur er þeir mættust. „Gangi þér vel,“ sagði Guðni við Davíð og bætti svo við: „En ekki of vel,“ kíminn. Guðni hefur mælst með næst mest fylgi frambjóðenda á eftir sitjandi forseta, Ólafi Ragnari Grímssyni.
Tengdar fréttir Guðni Th: Tími Ólafs Ragnars og Davíðs er liðinn Getum haldið áfram án þess að vera undir handarjaðri Davíðs eða Ólafs, segir Guðni Th. Jóhannesson. 8. maí 2016 11:57 Davíð Oddsson býður sig fram til forseta Íslands Ritstjóri Morgunblaðsins sækist eftir embætti forseta. 8. maí 2016 09:53 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira
Guðni Th: Tími Ólafs Ragnars og Davíðs er liðinn Getum haldið áfram án þess að vera undir handarjaðri Davíðs eða Ólafs, segir Guðni Th. Jóhannesson. 8. maí 2016 11:57
Davíð Oddsson býður sig fram til forseta Íslands Ritstjóri Morgunblaðsins sækist eftir embætti forseta. 8. maí 2016 09:53