Innlent

Árásin í Þorlákshöfn: „Við erum með allt landið undir“

Birgir Olgeirsson skrifar
Móðir drengsins á Þorlákshöfn segir hann vera skelfingu lostinn eftir atburðinn.
Móðir drengsins á Þorlákshöfn segir hann vera skelfingu lostinn eftir atburðinn. VÍSIR/ÖLFUS
„Við höfum ekki fengið neitt handbært til að fara eftir,“ segir Elís Kjartansson, rannsóknarlögreglumaður á Suðurlandi, um rannsókn lögreglunnar á árásinni í Þorlákshöfn. Þar reyndi maður að draga dreng inn í bíl á mánudag en lögreglan lítur málið alvarlegum augum og rannsakar það fremur sem árás en tælingu. 

Drengurinn var á gangi eftir göngustíg í bænum þegar maðurinn fór út úr bílnum og kom aftan að drengnum og reyndi að draga hann inn í bíl sinn. Drengurinn, níu ára gamall, brást þó rétt við og kom sér undan manninum.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er lýsing drengsins á manninum það eina sem lögreglur hefur á að byggja í málinu. Hann er sagður vera 30 til 40 ára gamall, um 180 sentímetrar á hæð. Þybbinn með ljósbrúnt hár. Var hann svartklæddur í peysu sem á stóð ASA með áberandi appelsínugulum stöfum, þá var hann í rauðum skóm og íþróttabuxum. Er hans nú leitað en ekki liggur fyrir lýsing á bíl mannsins.

Elís segir lögreglunni hafa borist nokkrar ábendingar en nánari eftirgrennslan á þeim hefur ekki leitt til neins.

Móðir drengsins sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að maðurinn hefði sagt syni hennar að hann ætlaði að taka hann með sér til Reykjavíkur í kjallarann sinn. Elís segir lögregluna á Suðurlandi hafa rætt við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu vegna rannsóknar málsins. Skipst hafi verið á upplýsingum og pælingum en það hafi engu skilað enn sem komið er.

Leitin að manninum einskorðast því ekki við Reykjavík og er allt opið. „En hann virðist ekki var heimamaður þarna í Þorlákshöfn. Við erum með allt landið undir. Hann virðist vera Íslendingur.“ 


Tengdar fréttir

Drengurinn skelfingu lostinn

Níu ára drengur var á gangi eftir göngustíg rétt ofan við Þorlákshöfn í gær þegar ókunnugur maður kom aftan að honum og reyndi draga hann inn í bíl til sín. Drengurinn náði að koma sér undan. Móðir drengsins segir hann vera skelfingu lostinn eftir atburðinn.

Mikilvægt að brýna fyrir börnum að forða sér og láta vita

Mál níu ára drengs sem reynt var að lokka upp í bíl í Þorlákshöfn hefur vakið mikið umtal. Edda Andrésdóttir ræddi við Hrafndísi Teklu Pétursdóttur í kvöldfréttum Stöðvar 2 um hvernig best sé að ræða við börn um slíkar aðstæður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×