Mikilvægt að brýna fyrir börnum að forða sér og láta vita nína hjördís þorkelsdóttir skrifar 6. september 2016 21:47 „
Í fyrsta lagi að hlaupa og láta vita,” segir Hrafndís Tekla Pálsdóttir, sálfræðingur, að séu mikilvægustu viðbrögðin ef börn lenda í aðstæðum þar sem reynt er að lokka þau eða tæla. Hrafndís var gestur Eddu Andrésdóttur í kvöldfréttum Stöðvar 2 fyrr í kvöld en Edda ræddi við hana í tengslum við atvik sem kom upp í Þorlákshöfn í gær. Þar reyndi maður að tæla níu ára dreng upp í bifreið sína en drengurinn sýndi hárrétt viðbrögð þegar hann reif sig lausan og hljóp á brott eftir að gerandinn kom aftan að honum á göngustíg í bænum.Gagnlegt að leiða barnið í gegnum hugsanlegar aðstæður Aðspurð um hvernig best sé að tala við börn um aðstæður sem þessar segir Hrafndís að gott sé að barnið sjái aðstæðurnar vel fyrir sér. „Það er mikilvægt þegar þú talar við barnið að hjálpa því að máta sig inn í aðstæðurnar, sjá þetta fyrir sér myndrænt og leiða það svolítið áfram. Við ímyndum okkur til dæmis að þú sért að labba heim úr skólanum, það stoppar bíll og rúðan er skrúfuð niður. Kannski er kallað á þig. Hvaða valkosti hefur þú þá aðra en að stíga upp í bílinn?” Hrafndís segir að brýna þurfi fyrir börnum að þau eigi að hlaupa í burtu í svona aðstæðum og láta vita.Börnum tamt að hlýða fullorðnumSamkvæmt Hrafndísi eru mál af þessu tagi ólík og tekur hún dæmi um mál þar sem gerandi laug að barni að móðir þess hefði lent í slysi. Börnum sé tamt að hlýða fullorðnum en í svona tilvikum er mikilvægt að brýna fyrir börnum að hringja í mömmu eða pabba eða hlaupa í burtu í stað þess að leggja traust á ókunnuga manneskju.Falskt öryggi í hópOft getur myndast falskt öryggi þegar börn eru í hóp. „Dæmin sýna að börn í hóp hafa verið tekin upp í bíl. Þá á líka að hringja í mömmu,“ fullyrðir Hrafndís. Í sumum tilfellum kunna börnin jafnframt að kannast við þann sem reynir að lokka þau inn í bíl til sín og er mikilvægt að þau geri sér grein fyrir því að í slíkum aðstæðum sé best að hringja í foreldra eða forða sér.
Tengdar fréttir Árásin í Þorlákshöfn: Kom aftan að drengnum Lögreglunni hefur ekki borist frekari vísbendingar um árásarmanninn. 6. september 2016 13:42 Tælingarmálið í Þorlákshöfn: Drengurinn skelfingu lostinn Níu ára drengur var á gangi eftir göngustíg rétt ofan við Þorlákshöfn í gær þegar ókunnugur maður kom aftan að honum og reyndi draga hann inn í bíl til sín. Drengurinn náði að koma sér undan. 6. september 2016 17:15 Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira
Árásin í Þorlákshöfn: Kom aftan að drengnum Lögreglunni hefur ekki borist frekari vísbendingar um árásarmanninn. 6. september 2016 13:42
Tælingarmálið í Þorlákshöfn: Drengurinn skelfingu lostinn Níu ára drengur var á gangi eftir göngustíg rétt ofan við Þorlákshöfn í gær þegar ókunnugur maður kom aftan að honum og reyndi draga hann inn í bíl til sín. Drengurinn náði að koma sér undan. 6. september 2016 17:15