"Að skerpa á verkferlum“ Árni Hermannsson skrifar 6. desember 2016 07:00 Það mun hafa verið upp úr 1970 þegar lagmetisfyrirtækið K. Jónsson, sælla minninga, flutti út magnaða gaffalbita sem höfnuðu í verslunum í austurhluta Moskvuborgar. Nokkru síðar var Ivan nokkur Sergeiwitz fundinn sekur í héraðsdómi nr. 9 í austurbænum í Moskvu en karlinn hafði víst stútað spúsu sinni. Ivan hlaut dauðadóm fyrir réttinum en dómari bauð Ivan karlinum upp á refsingu til vara; að lifa á lagmeti frá K. Jónssyni næstu daga! Ef Mast hefði verið að störfum í Moskvu um þetta leyti og K. Jónsson aukið útflutninginn, hefði e.t.v. mátt stytta kalda stríðið um einhver ár. Það er gæfa þjóðarbúsins að uppákoma síðustu daga skuli ekki hafa verið í sjávarútveginum. Eggjasagan er harmleikur en skattborgarar hljóta öðru fremur að undrast framgöngu stofnana sem þeir standa peningalega straum af. Viðkvæðið hjá forstöðumanni Mast er „að skerpa á verkferlum“ og ráðuneytisstjórinn (nýhækkaður í launum hjá kjararáði í sumar vegna „sérstakrar ábyrgðar í starfi“) stefnir að því að „laga eða setja nýja reglugerð“ og gott ef ekki að kalla saman starfshóp (vonandi með tölvupósti sem týnist!)! Aðaleinkenni vondrar stjórnunar er nefnilega að setja fleiri reglur og lög þegar illa gengur. Öllum má ljóst vera, að það eina sem skortir er heilbrigð skynsemi og vottur af framtakssemi sem virðist reyndar vera fyrir hendi hjá almennum starfsmönnum Mast. Til að bíta höfuðið af skömminni stígur fram fyrrverandi landbúnaðarráðherra og hefur ekki manndóm í sér að viðurkenna að ráðuneyti hans steingleymdi að banna mönnum að nota orðið vistvænt þegar ráðuneyti hans var búið að afnema lögin um vistvæna framleiðslu í nafni þjóðarinnar! Til að kóróna vitleysuna kemur svo málglaði borgarstjórinn fram í sjónvarpinu og segir að ekkert pláss sé til fyrir afkastamesta mengunarsóða borgarinnar, Hringrás, eða með hans eigin orðum: „Hvar á setja fyrirtæki sem alltaf er kvikna í“! Mikill húmoristi tyllidagaborgarstjórinn! Hvers konar samfélag er það sem eyðir milljörðum í liðónýtt eftirlitskerfi en skammtar úr lófa grunnskólakennurum, sem ætlað er að uppfræða börnin okkar, „fjöregg“ þjóðarinnar? Fer aldrei í taugarnar á þér að vera Íslendingur, lesandi góður? Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Öll með? – 4.020 kr. hækkun fyrir skatt eftir 16 mánuði! Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Vekjum risann Guðmundur Karl Brynjarsson Skoðun Katrín Jakobsdóttir forseti Viðar Pálsson Skoðun Látum hjartað ráða för Sigrún Traustadóttir Skoðun Mýtan um launin Elsa Nore Skoðun Samt kýs ég Katrínu Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Forysta til framtíðar Hópur presta Skoðun Gummi Kalli er rétti kosturinn sem biskup Íslands Áslaug Helga Hálfdánardóttir,Dís Gylfadóttir,Guðni Már Harðarson Skoðun Tíminn að renna út Ragnar Þór Ingólfsson Skoðun Í ker eða kistu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Öll með? – 4.020 kr. hækkun fyrir skatt eftir 16 mánuði! Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Látum hjartað ráða för Sigrún Traustadóttir skrifar Skoðun Vekjum risann Guðmundur Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Katrín Jakobsdóttir forseti Viðar Pálsson skrifar Skoðun Þjóðarsátt líka fyrir fatlað fólk Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Í ker eða kistu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Gummi Kalli er rétti kosturinn sem biskup Íslands Áslaug Helga Hálfdánardóttir,Dís Gylfadóttir,Guðni Már Harðarson skrifar Skoðun Gummi Kalli, einlægur, skemmtilegur og frábær leiðtogi Arnar Ragnarsson skrifar Skoðun Ræstingafyrirtæki og starfsmannaleigur í jafnréttisparadísinni Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Forysta til framtíðar Hópur presta skrifar Skoðun Fyrir hverja eru skoðanakannanir? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Án varna, ekkert frelsi Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Mýtan um launin Elsa Nore skrifar Skoðun Samt kýs ég Katrínu Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Viltu vera memm? Birna Dröfn Birgisdóttir skrifar Skoðun Tíminn að renna út Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Átt þú rétt á sumarbústað? Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Vonbrigði fyrir þá verst settu Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Fögnum unnum sigrum og aðlögumst nýjum tímum Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Baldur Þórhallsson er minn forseti! Sara Dögg Svanhildardóttir skrifar Skoðun Baráttan heldur áfram Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Forsetinn minn 2024 Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Vanefndir Flugakademíu Íslands Gunnar Hjörtur Hagbarðsson skrifar Skoðun Hippókratesareiðurinn þarf að verða að veruleika Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Ólafur og Katrín á RÚV Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Úthvíld ríkisstjórn? Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Raforkan er auðlind þjóðarinnar Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Að velja forseta Stefán Bogi Sveinsson skrifar Skoðun Biskupskjör: Stuðningsyfirlýsing Hákon Leifsson,Sigrid Rolof skrifar Skoðun Kennslustund í „selfies“ Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Gummi Kalli er rétti kosturinn sem biskup Íslands Áslaug Helga Hálfdánardóttir,Dís Gylfadóttir,Guðni Már Harðarson Skoðun
Skoðun Gummi Kalli er rétti kosturinn sem biskup Íslands Áslaug Helga Hálfdánardóttir,Dís Gylfadóttir,Guðni Már Harðarson skrifar
Gummi Kalli er rétti kosturinn sem biskup Íslands Áslaug Helga Hálfdánardóttir,Dís Gylfadóttir,Guðni Már Harðarson Skoðun