Málaðu þína jólamynd árið 2016 Kristín Linda sálfræðingur skrifar 6. desember 2016 11:24 Flestir eru fremur varnafastir þegar kemur að stórhátíðum eins og jólum. Enn eru jafnvel á borðum réttir sem urðu að sparimat fyrir áratugum litaðir af vöruframboði þess tíma. Þannig var það með límkennda ávaxtagrautinn úr þurrkuðu ávöxtunum sem fjölskylda ein snæddi á aðfangadagskvöld þar til hugaður einstaklingur við jólaborðið sagði: Er það bara ég, eða er þessi eftirréttur bara ekki góður, er kannski hægt að velja eitthvað annað á aðfangadag? Vaninn getur verið vinur okkar og auðveldað okkur lífið en hann getur líka orðið okkur fjötur um fót. Hann getur valdið því að á aðventu og jólum leitum við í huganum til baka, í gamlar myndir af fyrri aðventu og jólum og hefjumst svo handa við að endurgera þær. Svo stendur hnífurinn í kúnni þegar við áttum okkur á að það er ef til vill alls ekki hægt, æskilegt eða ákjósanlegt vegna þess að lífið er síbreytilegt ævintýri og staða okkar um leið. Það sem áður gladdi og studdi gerir það hugsanlega alls ekki í dag.Komandi desemberdagar verða öðruvísi hjá ótal fjölskyldum. Þeir verða öðruvísi vegna þess að tímans hjól hefur tifað, breytingar hafa orðið.Í sumum tilfellum fylgir breytingunum gleði og þakklæti, til dæmis þegar fjölskylda nýtur jólanna með nýju barni. Á öðrum heimilum er breytingin erfið, ef til vill er einhver sem áður var hluti af fjölskyldunni ekki lengur þar. Því geta fylgt tilfinningar eins og eftirsjá, vonbrigði, reiði og sorg. Margskonar aðrar breytingar geta reynt á, veikindi, dvöl barna á öðru heimili og erfiðleikar og áhyggjur til dæmis vegna heilsu eða fjármála. Í erfiðleikum er mikilvægt að átta sig á þeim möguleikum sem þó eru í stöðunni til að bæta líðan sína og líf. Að hafa kjark og kraft til að mála nýja jólamynd miðað við núið, árið 2016. Sumir verða að gera það tilneyddir en aðrir gera það af því að þeir kjósa það og langar til að opna nýjar dyr upplifana og gleðistunda.Listin að lifa flest meðal annars í því að:Beina athygli sinni, hugsunum og upplifun að því sem lyftir, gleður og bætir einmitt núna, miðað við líf þitt í dag. Já við erum að tala um desember árið 2016, ekki siði fortíðar!Hafa sig í að mála nútímalegar og nýjar lífsmyndir og skapa þar með nýjar og viðeigandi upplifanir og venjur fyrir sig og sína hvort sem er á aðventu, jólum, áramótum eða aðra daga.Setja fjölbreyttar hamingjustundir á dagskrá, markvisst og ákveðið, smærri og stærri, en muna samt að flækja ekki ánægjuna með of miklum kröfum.Muna að ef lífið er of snúið er hjálp að fá ef eftir henni er leitað. Leitaðu þér hjálpar ef þarf fyrr en seinna, smá hjálp getur gert kraftaverk.Frelsið og valið á aðventu, jólum og áramótum varðandi okkar eigin venjur, siði og hegðun er raunverulegt. Við höfum ótrúlega mikið val allt frá því að við opnum augun að morgni. Hverju viljum við klæðast, hvað viljum við snæða, á hvað viljum við hlusta eða horfa og hvað viljum við gera.Leyfum okkur að líta á desemberdagana okkar á nýjan hátt í stað þess að reyna aftur og aftur að mála gömlu myndina eins og hún var.Frumleg og skapandi hugsun getur búið til alveg nýja ævintýramynd úr desemberdögum, Þorláksmessu, aðfangadegi, jóladegi eða áramótum. Það er í alvöru er allt mögulegt hægt alveg frá því að velja annan eftirrétt en límkennda ávaxtagrautinn yfir í að færa aðfangadagskvöldsdagskrána með öllu til annars dags á dagatalinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Kveikur brennur út Þorsteinn Sæmundsson Skoðun Ólafur og Katrín á RÚV Þorvaldur Logason Skoðun Má spyrja homma að öllu? Sólborg Guðbrandsdóttir Skoðun Enga saltdreifara á Bessastaði takk Skírnir Garðarsson Skoðun Gætir þú lifað af örorkubótum? Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Bóndi hvað! Sigríður Ævarsdóttir Skoðun Úthvíld ríkisstjórn? Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Skoðun Góð manneskja í djobbið Halldór Guðmundsson Skoðun Að velja forseta Stefán Bogi Sveinsson Skoðun Þessu skal troðið ofan í kokið á okkur sama hvað Guðrún Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hippókratesareiðurinn þarf að verða að veruleika Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Ólafur og Katrín á RÚV Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Úthvíld ríkisstjórn? Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Raforkan er auðlind þjóðarinnar Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Að velja forseta Stefán Bogi Sveinsson skrifar Skoðun Biskupskjör: Stuðningsyfirlýsing Hákon Leifsson,Sigrid Rolof skrifar Skoðun Kennslustund í „selfies“ Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Synjunarvald gegn virkjunum Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Bóndi hvað! Sigríður Ævarsdóttir skrifar Skoðun Dagsbirtan lyftir andanum Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir,Hrefna Björg Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Kveikur brennur út Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Gætir þú lifað af örorkubótum? Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Spurt og svarað um útlendingamál Indriði Stefánsson skrifar Skoðun Jafnaðarmannastefnan – stefna velferðar Sigfús Ómar Höskuldsson skrifar Skoðun Bóndi hvað! Sigríður Ævarsdóttir skrifar Skoðun Guðrún - Réttlátur og víðsýnn biskup sem fylgir samtímanum Rannveig Iðunn Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Má spyrja homma að öllu? Sólborg Guðbrandsdóttir skrifar Skoðun Enn og aftur sumarlokun hjá SÁÁ Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Fjárveitingar til vegamála standast engan samanburð Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Aumingja Evrópa: Líkleg átakasvæði að Úkraínustríðinu loknu? Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Biskupsval Sigfinnur Þorleifsson,Vigfús Bjarni Albertsson skrifar Skoðun Afmennska að bjarga ekki dýrum í neyð! Anna Berg Samúelsdóttir skrifar Skoðun Þessu skal troðið ofan í kokið á okkur sama hvað Guðrún Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Hvað er ofurhagnaður? Gústaf Steingrímsson skrifar Skoðun Góð manneskja í djobbið Halldór Guðmundsson skrifar Skoðun Afkomuviðvörun Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Hver er þinn innri áttaviti? Signý Gyða Pétursdóttir skrifar Skoðun Eins og sandur úr greip Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Enga saltdreifara á Bessastaði takk Skírnir Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig forseta vilt þú? Valdís Arnarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Guðrún - Réttlátur og víðsýnn biskup sem fylgir samtímanum Rannveig Iðunn Ásgeirsdóttir skrifar