Íslenskar konur lifa almennt heilsusamlegra lífi en íslenskir karlar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 29. febrúar 2016 16:35 Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar neyta fleiri konur en karlar ávaxta og grænmetis tvisvar á dag eða oftar. vísir/andri marinó
Íslenskir karlmenn drekka sig að öllu jöfnu oftar en ölvaða en íslenskar konur og er ölvunardrykkja talsverð á meðal landsmanna, ekki síst á meðal fólks í aldurshópnum 18 til 24 ára. Þannig segjast 52 prósent karla í þeim aldurshópi drekka sig ölvaða einu sinni í mánuði eða oftar og 45 prósent kvenna. Eftir því sem fólk eldist dregur hins vegar úr drykkjunni, þó hún sé enn ívið meiri hjá körlunum. Hlutfall þeirra sem reykja heldur svo áfram að lækka en nú segjast 10 prósent landsmanna reykja daglega samanborið við 14 prósent árið 2014. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í Talnabrunni, fréttabréfi Landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, en þar eru raktar niðurstöður úr umfangsmikilli könnun sem Capacent gerði fyrir embættið á áhrifaþáttum heilbrigðis. Markmið könnunarinnar er að fylgjast með heilsuhegðun Íslendinga og þróun tiltekinna áhrifaþátta, svo sem notkun áfengis og tóbaks, hreyfingar og mataræðis. Könnunin fór fram dagana 26. nóvember til 15. desember 2015. Úrtakið var 2.819 einstaklingar af öllu landinu, 18 ára ára og eldri, sem valdir voru af handahófi. Þátttökuhlutfall var 61%. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar neyta fleiri konur en karlar ávaxta og grænmetis tvisvar á dag eða oftar. Þannig segjast 31 prósent kvenna borða ávexti tvisvar á dag eða oftar en 19 prósent karla. 28 prósent kvenna segjast neyta grænmetis tvisvar á dag eða oftar á móti 16 prósentum karla. Þá drekkur um fjórðungur karla sykraða gosdrykki fjórum sinnum í viku eða oftar en 12 prósent kvenna. Meirihluti Íslendinga telur sig vera hamingjusama og almennt telja landsmenn andlega heilsu sína góða. Það er hins vegar áhyggjuefni að mati landslæknis hversu stór hluti karla fær að jafnaði of lítinn svefn auk þess sem ástæða er til að hafa áhyggjur af því að um þriðjungur kvenna segist oft eða mjög oft finna fyrir mikilli streitu í daglega lífinu. Þá er það jafnframt áhyggjuefni að mati embættisins að umtalsverður hluti landsmanna hreyfir sig lítið sem ekkert en tæplega fimmtungur kvenna segist ekki hreyfa sig og tæplega fjórðungur karla.
Mest lesið Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Veður Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Innlent Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Innlent Fleiri fréttir Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Sjá meira