Sigmundur Davíð segir viðbrögð nettrölla jafn sterk og stöðug og verðtryggð íslensk króna Birgir Olgeirsson skrifar 7. janúar 2016 14:43 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. Vísir/Vilhelm
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra þakkar nettröllum fyrir að deila fréttum upp úr viðtali sem ráðherrann veitti í morgunþættinum Í bítið á Bylgjunni í gær. Sigmundur sagðist hafa reynt að útskýra í þættinum að vaxtarstig gjaldmiðla réðist ekki af því hvað myntin heitir. „Í því skyni vísaði ég til þess sem margir gagnrýnendur verðtryggingakerfisins hafa bent á, þ.e. að verðtryggð króna sé í raun sterkasti og stöðugasti gjaldmiðill heims vegna þess að lánveitandinn er alltaf öruggur um að fá allt sitt til baka og lántakinn ber alla áhættuna. Ég reyndi ekki að eigna mér heiðurinn af því að benda á þetta af því að það hefur verið gert svo oft í umræðu undanfarinnar ára að það er eiginlega orðið frasi fremur en ný sannindi,“ skrifar Sigmundur á Facebook í dag. Fyrirsagnir upp úr þessu viðtali voru nokkrar á þá leið að Sigmundur Davíð hefði sagt íslensku krónuna stöðugasta og sterkasta gjaldmiðil í heimi. Sigmundur segir vefmiðla þurfa að fá sína umferð og segir að í mörgum tilfellum hafi þeir gert því ágætis skil um hvað var að ræða í meginmáli fréttanna. „En nettröll eru hvorki þekkt fyrir einbeitingu né yfirvegun. Þau komust auðvitað ekki lengra en í gegnum fyrirsögnina, hrukku af hjörunum og deildu fréttunum um allt. Það kom sér ljómandi vel því að fyrir vikið komust fréttirnar til miklu fleira fólks en ella hefðu séð þær og þeir sem höfðu áhuga gátu kynnt sér innihaldið,“ skrifar Sigmundur Davíð. Hann segir þetta dæmi um hvernig fyrirsjáanleg viðbrögð tröllanna sem deila efninu ólesnu. „Þau eru jafn sterk og stöðug og verðtryggð íslensk króna,“ skrifar Sigmundur. Sælt veri fólkið á nýju ári. Vona að jólin hafi verið skemmtileg hjá ykkur og tröllunum líka. Ég var í viðtali á...Posted by Sigmundur Davíð Gunnlaugsson on Thursday, January 7, 2016
Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Fleiri fréttir Wolt kærir hótanir sendlanna til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Sjá meira