Áforma höfðingjasetur í Mosfellsbæ fyrir sýningu um gullöld Íslendinga Garðar Örn Úlfarsson skrifar 11. febrúar 2016 07:00 Árnastofnun er óspennandi staður ef marka má þá sem vilja reisa miðaldasetur í Mosfellsdal. Forseti Íslands og Margrét Danadrottning heimsóttu Árnastofnun saman árið 2013. Visir/GVA
Unnið er að því kanna jarðveg fyrir verkefni sem nefnt er Höfðingjasetur og á að vera í landi Helgafells í Mosfellsbæ. Höfðingjasetrinu er ætlað að kynna gullöld menningar Íslendinga á tólftu öld. Að baki fyrirspurninni til bæjarins eru kvikmyndagerðarmaðurinn Halldór Þorgeirsson og Úlfur Hróbjartsson, formaður Siglingasambands Íslands. Segjast Halldór og Úlfur hafa náð samkomulagi við eiganda tiltekinnar spildu í landi Helgafells um kauprétt sem gildi fram í apríl. Vilji þeir kanna hug skipulagsyfirvalda áður en fleiri skref verði stigin. „Upphaf íslenskrar menningar má rekja til miðalda er Íslendingar hófu að rita handrit á móðurmáli sínu,“ segir í bréfi Halldórs og Úlfs til bæjarráðs Mosfellsbæjar. Segja þeir Íslendinga enn skilgreina sig út frá tungu og sögum þessara handrita. Þessu sé lítt haldið á lofti. „Það er helst í Árnastofnun og Þjóðmenningarhúsi sem hægt er að kynna sér þessa þætti en hvort tveggja er mjög þurr og þröng nálgun á þetta blómaskeið Íslandssögunnar,“ skrifa tvímenningarnir sem taka fram að hugmyndin snúist ekki um víkinga og landnámsmenn sem hrakist hafi til Íslands upp á von og óvon heldur það sem gerðist tíu kynslóðum síðar. „Þá eru Íslendingar hættir að vera flóttamenn og farnir að að skapa menningu sem síðar hefur verið nefnd gullöld þjóðarinnar,“ segir í bréfi Halldórs og Úlfs. Með Höfðingjasetrinu vilji þeir gera þessu tímabili góð skil.Halldór Þorgeirsson. Fréttablaðið/Stefán„Ætlunin er að reisa skála, kirkju, smiðju og ritstofu “ eins og þau kunna að hafa verið við upphaf ritaldar 1130. Í húsunum verður lifandi sýning, þar sem handverksmenn sýna handverk sitt og lifandi leiðsögn leiðir fólk um svæðið,“ er áformunum nánar lýst. „Á þennan hátt fá gestir innsýn í heim íslenskra miðalda, verklag, lifnaðarhætti og menningu.“Úlfur Hróbjartsson. Fréttablaðið/Stefán„Ekki er ætlunin að vera eingöngu með sýningarhald í Höfðingjasetrinu því þar á einnig að vera veitingasala og minjagripasala,“ segir í bréfinu sem tekið hefur verið fyrir í bæjarstjórn sem samþykkti að fela Haraldi Sverrissyni bæjarstjóra að ræða við fyrirsvarsmenn Höfðingjasetursins.
Menning Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Sjá meira