Hrafninn Flóki eltir börnin á trampólíníð Vera Einarsdóttir skrifar 8. ágúst 2016 14:00 Hér er Flóki að kríta. Hann er að sögn Þorgríms alltaf með eitthvað í goggnum og ferjar hluti viðstöðulaust á milli staða.
Hrafninn Flóki heldur til á Erpsstöðum í Dalabyggð og fylgir ábúendum hvert fótmál. Hann er uppátækjasamur með eindæmum, er með nefið ofan í öllu og lætur sig alla gesti varða. Þeir munda myndavélarnar á móti. Flóki hefur haldið til á Erpsstöðum síðan í byrjun sumars. „Það var komið með tvo hrafnsunga hingað sem höfðu fundist í hreiðri sem einhverra hluta vegna hafði verið yfirgefið. Mig minnir að það hafi verið í kringum 20. maí. Við vorum með þá báða í nokkra daga en létum svo annan frá okkur,“ segir Þorgrímur Einar Guðbjartsson, bóndi á rjómabúinu Erpsstöðum sem hann rekur ásamt eiginkonu sinni, Helgu Elínborgu Guðmundsdóttur. Flóki varð fljótt hændur að ábúendum og fylgir þeim nú hvert fótmál. „Hann er alltaf hérna og skoppar eða flýgur á eftir okkur á milli húsa. Hann á það líka til að setjast á toppinn á bílnum og fá far,“ lýsir Þorgrímur.Hrafninn hefur komið sér upp góðri rútínu og sefur fyrir utan svefnherbergisglugga hjónanna á Erpsstöðum. Hann freistar þess daglega að komast inn í bæ.Hann segir hrafninn afar uppátækjasaman. „Hann er með nefið ofan í öllu og alltaf eitthvað að gramsa. Það er talað um að hrafnar séu glysgjarnir og þjófóttir og ýta kynni okkar af Flóka frekar undir það. Hann getur ekki látið neitt í friði og fyrir honum er allt nýtt. Þetta er svolítið eins og að fylgjast með ofvirkum einstaklingi,“ segir Þorgrímur. „Hann vill líka alltaf hafa eitthvað í gogginum. Ef hann finnur eitthvað nýtt leggur hann það sem hann er með frá sér og því er alltaf hægt að rekja eftir hann slóðina,“ segir Þorgrímur og reynir að yfirgnæfa hljóðin í krumma sem er venju samkvæmt á vappi í kringum hann með tilheyrandi gargi. Aðspurður segir Þorgrímur fuglinn hafa fasta rútínu. „Hann fer yfirleitt að sofa milli níu og tíu. Hann sest þá á grindverkið við heita pottinn sem er beint fyrir utan svefnherbergi okkar hjóna. Upp úr fimm flýgur hann eitthvað burt en er svo mættur fyrir utan hús þegar við förum á fætur á milli sex og hálf sjö. Þegar hann fylgir okkur heim á kvöldin flýgur hann á undan okkur og sest svo fyrir utan dyrnar. Hann freistar þess alltaf að komast inn í hús en hefur ekki haft erindi sem erfiði hingað til.“Flóki lætur sig alla gesti varða og er með nefið ofan í öllu sem þeir gera.Þorgrímur segir fjölskylduna ekki reyna að temja fuglinn. „Við reynum þó aðeins að siða hann til. Þetta er hins vegar villidýr og hann gæti allt eins flogið burt. Hann fær matarafganga hér eins og önnur húsdýr á bænum en aflar sér líka fæðu sjálfur. Hann er líka duglegur að ná sér í fóðurbæti og stelur frá svínunum. Um daginn var hann svo kominn inn í hænsnakofa og gerði sig líklegan til að taka hann yfir við litla hrifningu hænsnanna sem hlupu út með fjaðrirnar í allar áttir.“ Þorgrímur segir hrafninn vekja athygli gesta sem koma á bæinn til að fá sér ís beint frá býli. „Hann tekur eftir öllu nýju og vappar hér forvitinn á milli gestanna. Þeir munda myndavélarnar á móti og ég hugsa að hann hljóti að vera mest myndaða fyrirbæri á Vesturlandi fyrir utan Glym. Hann getur líka verið svolítið ágengur. Um daginn var hér maður sem vildi ná mynd af sólarupprásinni. Hann kom myndavélinni fyrir á breiðum stólpa niðri við veg en var ekki fyrr kominn inn í bíl en að Flóki var sestur á vélina, farinn að skoða linsuna og þar af leiðandi skyggja á sólina.“ Aðspurður segir Þorgrímur suma hafa varann á sér gagnvart fuglinum. „Það er alveg eðlilegt. Þetta er villidýr og maður veit auðvitað ekki hverju hann tekur upp á.“ Þorgrímur segir sumarið á Erpsstöðum annars hafa verið einstaklega kraftmikið og gott. „Veðrið hefur leikið við okkur og mér finnst gaman að sjá hve margir gefa sér góðan tíma hérna. Fólk sest út, skoðar dýrin og börnin leika sér í leiktækjunum.“Flóki eltir börnin á trampólínið.
Mest lesið Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Lífið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða í dag Makamál „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Lífið Matt Brown er látinn Lífið Áslaug býður í partý Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Lífið Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Fleiri fréttir „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Sjá meira
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“