Innlent

Bannið framlengt

Viðskiptabann Evrópusambandsins og Bandaríkjanna á Rússland, sem íslensk stjórnvöld styðja, var framlengt í árslok um sex mánuði en til stóð að það félli niður í lok janúar.  - Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, hefur fullyrt að ekki komi til greina að endurskoða afstöðu Íslendinga gagnvart viðskiptaþvingununum. Eins og er kunnugt er afstaða stjórnvalda harðlega gagnrýnd af fulltrúum fyrirtækja og samtaka í sjávarútvegi, enda Rússlandsmarkaður einn af mikilvægustu mörkuðum Íslands fyrir frystan uppsjávarfisk; loðnu-, síldar- og makrílafurðir.  - Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi segja þátttöku Íslands einungis táknræna og Kolbein Árnason, framkvæmdastjóri SFS, hefur hvatt til að afstaða Íslands verði endurskoðuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×