Störf á leikskóla ekki fyrir eldri borgara Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 23. september 2016 07:00 „Mér hefur fundist voða gott að vera úti með börnin og sinna þeim,“ segir Þórkatla sem lætur af störfum í dag á Ægisborg. vísir/gva „
Það er mikill misskilningur að eldri borgarar geti farið að stunda þessa vinnu þó þeirri hugmynd hafi verið hreyft. Hún er það erfið líkamlega,“ segir Þórkatla Sigfúsdóttir um starf á leikskóla. „Svo eru kröfurnar þannig að fólk þarf að kunna vel á tölvur því allt þarf að skrá.“ Þórkatla er 68 ára og hefur unnið á leikskólanum Ægisborg samfleytt frá 1982. Nú er hún að hætta í dag. „Ég kvíði fyrir að hætta en heilsan leyfir ekki að ég haldi áfram, ég er orðin það slæm í fótunum,“ útskýrir hún. Kveðst samt ekki geta hugsað sér skemmtilegra starf en á leikskóla. Tíminn sé svo fljótur að líða og ekki sé ein mínúta leiðinleg. „Börnin gefa manni svo mikið og foreldrarnir líka, það er allt yndislegt fólk og ég tala nú ekki um vinnufélagana.“ Segir það líka hafa bjargað sér að vera gift kona og hafa fyrirvinnu. Margt hefur breyst til batnaðar frá því að Þórkatla byrjaði á Ægisborg 1982. „Fyrst var þetta bara geymsla fyrir börn. Við vorum tvær á deild og reyndum að hafa ofan af fyrir börnunum og sinna þeim sem best. En í dag er starfið komið á skólastig. Ægisborg er klassaskóli og starfsfólkið allt háskólalært,“ segir hún. Á Ægisborg eru rúmlega 80 börn á tveimur deildum. Þórkatla er á „eldri deildinni“ sem er fyrir þriggja til sex ára. Það er minni vinna en með litlu börnin. Þau eru svo mikið á handleggnum. Hún hefur unnið frá 7.30 til 14 í mörg ár, það er 81% starf. „Þegar ég kem heim er ég algerlega búin og sef í tvo tíma. Börnin taka mikla orku þótt þau séu yndisleg og það er ekki fyrir eldra fólk að bogra yfir þeim, klæða þau og reima skóna.“ Þórkatla mun ekki verða iðjulaus þó að hún hætti að vinna. Hún er frá Raufarhöfn, þar á hún óðal og þarf að sinna æðarvarpi í vor. En ætlar að byrja á að skreppa til Prag. „Ég á fullt af áhugamálum og fjölda ættingja og vina,“ segir hún. „Er líka í mörgum klúbbum svo mér mun ekki leiðast.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Fleiri fréttir Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Sjá meira