Innlent

„Hver dagur á Landsspítala kraftaverk“

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Myndbandið gefur góða mynd af hversdagsleika starfssins á Landspítalanum.
Myndbandið gefur góða mynd af hversdagsleika starfssins á Landspítalanum. Vísir/Landsspítali
Á þriðjudag var nýtt myndband frumsýnt á ársfundi Landspítalans sem unnið var upp úr ársskýrslu spítalans 2015. Þar er hversdagsleikinn fangaður með fjölbreytilegri tölfræði og myndskeiðum af starfsfólki spítalans undir hetjulega tóna lagsins „Hoppípolla“ eftir Sigur Rós.

Í lok myndbandsins segir Pál Matthíasson, forstjóri spítalans, að hver dagur á Landspítalanum sé kraftaverk.

Nokkrir molar úr ársskýrslu Landspítalans 2015.Vísir
Svakaleg tölfræði

Þar kemur meðal annars fram að á hverjum degi; mæti rúmlega 200 manns á bráðamóttöku, að framkvæmdar séu skurðaðgerðir á 60 sjúklingum, sjö sjúklingar fari í hjartaþræðingu, 130 manns mæti á göngudeildir og bráðamóttöku geðsviðs, 70 mæti til skoðunar á húð- og kynsjúkdómadeild, mæti 40 börn á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins, liggi tólf manns á gjörgæslu, 80 nýir sjúklingar séu lagðir inn, átta börn komi í heiminn á spítalanum og þar af tvö með keisaraskurði.

Um 3700 starfsmenn vinna á landsspítalanum og er úrgangur hvers dags um 3,5 tonn. Einnig er tekið fram að rafmagnsnotkun Landsspítalans á hverjum degi svipi til notkunar 4000 heimila.

Myndbandið má sjá í heild sinni hér fyrir neðan:


Tengdar fréttir

Enn mikið álag á öllum deildum Landspítalans

Einkum á þetta við um þá sjúklinga sem hafa fengið færni-og heilsumat og svo þá sem bíða endurhæfingar en Páll Matthíasson, forstjóri spítalans, fer yfir þessa stöðu í pistli sem hann birti á vef spítalans í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×