Innlent

Sameining safna enn í umræðu

Svavar Hávarðsson skrifar
Þjóðminjasafnið, auk hinna höfuðsafnanna, er sagt eiga heima innan einnar stofnunar til viðbótar við fleiri minni söfn.
Þjóðminjasafnið, auk hinna höfuðsafnanna, er sagt eiga heima innan einnar stofnunar til viðbótar við fleiri minni söfn. VÍSIR/ANTON BRINK
Hluta hugmynda Viðskiptaráðs um fækkun ríkisstofnana má finna stað í tillögum hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar um aukna framleiðni og skilvirkni í ríkisrekstri frá 2013. Tillögurnar lúta að sameiningu á yfirstjórn safna á vegum hins opinbera, og þar á meðal allra höfuðsafnanna þriggja.

Viðskiptaráð birti 30 tillögur að fækkun ríkisstofnana um miðjan desember og lagði reyndar til að ríkisstofnunum yrði fækkað um rúmlega 100, úr 188 í 70. Ein þessara tillagna laut að samrekstri safna sem ríkið rekur í dag, eða níu talsins. Slíkur samrekstur, samkvæmt hugmyndum ráðsins, myndi fela í sér sameiningu án þess að slíkt þurfi að fela í sér breytingu á fjölda eða skipulagi starfsstöðva, en hægt væri að ná fram hagræðingu í stjórnunarkostnaði, stoðþjónustu, samræmdum vinnubrögðum og sérfræðiþekkingu án þess að draga úr kjarnastarfsemi á hverjum stað.

Í nóvember 2013 birti hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar 111 sparnaðartillögur og tvær þeirra, númer 36 og 37, fjölluðu um að yfirstjórnir Náttúruminjasafns Íslands, Þjóðminjasafns Íslands, Listasafns Einars Jónssonar og Listasafns Íslands yrðu sameinaðar, annars vegar. Hins vegar að yfirstjórnir Landsbókasafns Íslands, Kvikmyndasafns Íslands, Hljóðbókasafns Íslands og Þjóðskjalasafns Íslands yrðu sameinaðar.

Hugmynd Viðskiptaráðs er að öll söfnin sem hér eru nefnd fyrir ofan rynnu saman í eina stofnun – Safnastofnun.

Eftir að tillögurnar lágu fyrir var stofnaður samráðshópur um innleiðingu og eftirfylgni þeirra með fulltrúum allra ráðherra. Nokkrar þeirra hafa þegar náð fram að ganga, en minna farið fyrir öðrum.





Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar
Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, sem sat einnig í hagræðingarhópnum, segir að tillögur Viðskiptaráðs hafi efnislega ekkert komið til umræðu í fjárlaganefnd eða í hennar hópi. Hugmynd hagræðingarhópsins telur hún heldur ekki hafa náð lengra enda hafi „kerfið tekið öllum þessum hugmyndum mjög illa. Kerfið vill ekki minnka; það ver sig sjálft. Það er ekki nokkur leið að hreyfa við neinu, enda hefur kerfið sína málsvara á þingi, samanber umræðuna um Þróunarsamvinnustofnun“. Þar vísar Vigdís til andstöðu stjórnarandstöðunnar á Alþingi á liðnum vikum.

Hugmyndin um eina stofnun sem annaðist öll söfn í umsjón ríkisins telur Vigdís hins vegar vera algjörlega borðleggjandi og eiga að vera einfalda í framkvæmd. „Heilbrigð skynsemi segir okkur að þetta sé eina vitið,“ segir Vigdís.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×