Langlífi millistéttaraulans í boði Íslandsbanka Lilja Margrét Olsen skrifar 15. nóvember 2016 07:00 Íslandsbanki ákvað að veita bestu bankaþjónustu landsins. Liður í því var að bjóða hinn svokallaða íbúðarsparnaðarreikning. Óverðtryggður sparnaðarreikningur með 4,5% vexti, hugsaður fyrir ungt fólk á aldrinum 15-35 ára sem væri að safna fyrir útborgun fyrir húsnæði. Mér var seldur slíkur reikningur. Gulrótin var að þegar kæmi að húsnæðiskaupum fengi ég frítt greiðslumat og 50% afslátt af lántökugjöldum húsnæðislána hjá bankanum. Eins og okurútlánavextir séu ekki nóg! Í dag, tæpum tveimur árum eftir að ég hóf markvissa söfnun, keypti ég húsnæði. Ég hafði framkvæmt svokallað bráðabirgðagreiðslumat á vefsíðu bankans en til að sækja um lán þurfti ég að fara í greiðslumat hjá bankanum sjálfum. Greiðslumatið tók fjórar vikur (sem var gildistími kauptilboðsins) og niðurstaðan kom mér nokkuð á óvart.Gallað greiðslumat Í ljós kom að íbúðarsparnaðarreikningurinn var bundinn í 17 mánuði. Bankinn ákvað því, að mér forspurðri, að gera ráð fyrir að lána mér í formi yfirdráttar á móti sparnaðinum. Yfirdráttarlánið skyldi vera með 13% vöxtum. Vextirnir, sem hlupu á tugum þúsunda, komu svo til lækkunar ráðstöfunartekna í greiðslumatinu. Þar sem reikningurinn er ekki laus fyrr en eftir fimm mánuði er vaxtamunurinn á íbúðarsparnaðarreikningnum og yfirdráttarláninu neikvætt um tugi þúsunda. Fasteignamarkaðurinn hér á landi hefur enga þolinmæði og allra síst fyrir löngum greiðslufrestum. Ég var því nauðbeygð til að samþykkja yfirdráttarlánið til að fá sparnaðinn minn útgreiddan.Neikvæð ávöxtun sparnaðar Hefði ég þá haldið að málinu væri lokið. En nei – bankinn vildi fá mig til sín og fá undirritun mina á handveð í sparnaðaðrreikningnum á móti yfirdrættinum. Fyrir handveðið greiddi ég kr. 4.900.- Í mínu tilviki er tap mitt gríðarlegt á hinum svokallaða íbúðarsparnaðarreikningi Íslandsbanka. Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Íslandsbanki ákvað að veita bestu bankaþjónustu landsins. Liður í því var að bjóða hinn svokallaða íbúðarsparnaðarreikning. Óverðtryggður sparnaðarreikningur með 4,5% vexti, hugsaður fyrir ungt fólk á aldrinum 15-35 ára sem væri að safna fyrir útborgun fyrir húsnæði. Mér var seldur slíkur reikningur. Gulrótin var að þegar kæmi að húsnæðiskaupum fengi ég frítt greiðslumat og 50% afslátt af lántökugjöldum húsnæðislána hjá bankanum. Eins og okurútlánavextir séu ekki nóg! Í dag, tæpum tveimur árum eftir að ég hóf markvissa söfnun, keypti ég húsnæði. Ég hafði framkvæmt svokallað bráðabirgðagreiðslumat á vefsíðu bankans en til að sækja um lán þurfti ég að fara í greiðslumat hjá bankanum sjálfum. Greiðslumatið tók fjórar vikur (sem var gildistími kauptilboðsins) og niðurstaðan kom mér nokkuð á óvart.Gallað greiðslumat Í ljós kom að íbúðarsparnaðarreikningurinn var bundinn í 17 mánuði. Bankinn ákvað því, að mér forspurðri, að gera ráð fyrir að lána mér í formi yfirdráttar á móti sparnaðinum. Yfirdráttarlánið skyldi vera með 13% vöxtum. Vextirnir, sem hlupu á tugum þúsunda, komu svo til lækkunar ráðstöfunartekna í greiðslumatinu. Þar sem reikningurinn er ekki laus fyrr en eftir fimm mánuði er vaxtamunurinn á íbúðarsparnaðarreikningnum og yfirdráttarláninu neikvætt um tugi þúsunda. Fasteignamarkaðurinn hér á landi hefur enga þolinmæði og allra síst fyrir löngum greiðslufrestum. Ég var því nauðbeygð til að samþykkja yfirdráttarlánið til að fá sparnaðinn minn útgreiddan.Neikvæð ávöxtun sparnaðar Hefði ég þá haldið að málinu væri lokið. En nei – bankinn vildi fá mig til sín og fá undirritun mina á handveð í sparnaðaðrreikningnum á móti yfirdrættinum. Fyrir handveðið greiddi ég kr. 4.900.- Í mínu tilviki er tap mitt gríðarlegt á hinum svokallaða íbúðarsparnaðarreikningi Íslandsbanka. Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar