Guðni Th. stendur með allri þjóðinni Margrét S. Björnsdóttir skrifar 20. júní 2016 10:05 Það hefur verið áhugavert og í raun traustvekjandi að fylgjast með Guðna Th. Jóhannessyni sagnfræðingi verða á örfáum mánuðum til sem líklegt forsetaefni okkar Íslendinga. Fylgjast með hvernig samfélagssýn hans birtist okkur, sem lítið þekktu hann fyrir. Manns sem sjálfur hefur skarað fram úr, en ofmetnast ekki heldur leggur áherslu á að bæta hlut þeirra sem eiga undir högg að sækja. Barna, aldraðra, fatlaðra eða nýrra Íslendinga sem vilja setjast hér að og eru að fóta sig í nýjum heimi. Bjartsýnn og glaðsinna hefur hann ferðast um landið, drjúgan hluta kosningabaráttunnar. Haldið opna fundi, heimsótt fyrirtæki, skóla og hjúkrunarstofnanir með lífsförunaut sínum og eiginkonu Elizu Reid. Áhersla þeirra á að heimsækja eins marga staði úti um land og kostur var, á takmörkuðum tíma, endurspeglar þá sýn Guðna Th. að forseti Íslands eigi að vera fulltrúi allra Íslendinga.Til góðs fyrir Íslendinga Meirihluti Íslendinga virðist skynja að þarna fari einstaklingur sem geti bætt okkar samfélag. Ef til vill maður sem getur lagt sitt af mörkum til að sameina þjóðina eftir tæpan áratug sundrungar og sársauka allt of margra. Sársauka tugþúsunda Íslendinga, sem sjálfir eða venslafólk þeirra, missti eigur sínar eða atvinnu í kjölfar mistaka stjórnmála- og bankamanna í aðdraganda hrunsins 2008. Einstaklingur sem hafi “þekkingu og skaphöfn til að stuðla að sátt“, svo notuð séu eigin orð Guðna. Við sem höfum unnið fyrir hans framboð sem sjálfboðaliðar höfum skynjað kraft hans og hugsjónir um bætt líf öllum til handa. Ég er þess fullviss að nái hann kjöri getur hann stutt okkur sem þjóð til að ná sáttum á ný. Þess vegna hvet ég alla til að greiða Guðna Th. Jóhannessyni atkvæði sitt þann 25. júní nk. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Það hefur verið áhugavert og í raun traustvekjandi að fylgjast með Guðna Th. Jóhannessyni sagnfræðingi verða á örfáum mánuðum til sem líklegt forsetaefni okkar Íslendinga. Fylgjast með hvernig samfélagssýn hans birtist okkur, sem lítið þekktu hann fyrir. Manns sem sjálfur hefur skarað fram úr, en ofmetnast ekki heldur leggur áherslu á að bæta hlut þeirra sem eiga undir högg að sækja. Barna, aldraðra, fatlaðra eða nýrra Íslendinga sem vilja setjast hér að og eru að fóta sig í nýjum heimi. Bjartsýnn og glaðsinna hefur hann ferðast um landið, drjúgan hluta kosningabaráttunnar. Haldið opna fundi, heimsótt fyrirtæki, skóla og hjúkrunarstofnanir með lífsförunaut sínum og eiginkonu Elizu Reid. Áhersla þeirra á að heimsækja eins marga staði úti um land og kostur var, á takmörkuðum tíma, endurspeglar þá sýn Guðna Th. að forseti Íslands eigi að vera fulltrúi allra Íslendinga.Til góðs fyrir Íslendinga Meirihluti Íslendinga virðist skynja að þarna fari einstaklingur sem geti bætt okkar samfélag. Ef til vill maður sem getur lagt sitt af mörkum til að sameina þjóðina eftir tæpan áratug sundrungar og sársauka allt of margra. Sársauka tugþúsunda Íslendinga, sem sjálfir eða venslafólk þeirra, missti eigur sínar eða atvinnu í kjölfar mistaka stjórnmála- og bankamanna í aðdraganda hrunsins 2008. Einstaklingur sem hafi “þekkingu og skaphöfn til að stuðla að sátt“, svo notuð séu eigin orð Guðna. Við sem höfum unnið fyrir hans framboð sem sjálfboðaliðar höfum skynjað kraft hans og hugsjónir um bætt líf öllum til handa. Ég er þess fullviss að nái hann kjöri getur hann stutt okkur sem þjóð til að ná sáttum á ný. Þess vegna hvet ég alla til að greiða Guðna Th. Jóhannessyni atkvæði sitt þann 25. júní nk.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar