Umgengnistálmanir milli landa Gunnar Kristinn Þórðarson skrifar 10. mars 2016 07:00 Undanfarin ár hefur það færst í vöxt að barnafjölskyldur flytja til Norðurlanda í leit að betri lífskjörum. Er óhætt að fullyrða að slíkir flutningar hafi mikil áhrif á skilnaðarbörn þegar annað foreldrið flyst til útlanda en hitt er eftir heima. Því miður hefur brunnið við að lögheimilisforeldrar (hér kallaðir barnsmæður) sem flutt hafa utan, banna börnum sínum að umgangast feður sína búsetta á Íslandi. Alla jafna er það í hlutverki sýslumanns að samþykkja umgengnissamninga eða úrskurða umgengni með skilnaðarbörnum, og geta umgengnisforeldrar óskað eftir aðstoð sýslumannsembætta ef umgengni er tálmuð. Úrræði við tálmunum eru fá og léleg, og má segja að ef barnsmóðir er einbeitt við að tálma umgengni, geti hún komist upp með það, ef hún sættir sig við dagsektir annað slagið. Þótt erfitt og seinlegt sé að beita dagsektarúrræðum, geta barnsmæður engu að síður leikið á kerfið þannig að þær þurfi aldrei að greiða dagsektir þótt tálmanir haldi áfram. Þó er þetta eina úrræðið sem í boði er til að stemma stigu við umgengnistálmunum fyrir utan íhlutun valdstjórnarinnar á grundvelli innsetningarákvæðis barnalaga, sem nánast aldrei er notað. Þegar tálmanir eiga sér stað milli landa, þ.e. þegar umgengnisforeldrið er búsett á Íslandi en barn og barnsmóðir erlendis, geta umgengnisforeldrar ekki reitt sig á aðstoð sýslumanns, þar sem ákvæði barnalaga kveður svo á um að slík umgengnismál falli utan lögsögu sýslumanna. Hafa umgengnisforeldrar þá verið ráðalausir og jafnvel farið utan til að knýja fram umgengni, og þeir sem efni hafa keypt rándýra lögmannsþjónustu fyrir margar milljónir til að fá að sjá börn sín.Algjört úrræðaleysi Fjölmargir feður hafa komið að máli við Samtök umgengnisforeldra og lýst algjöru úrræðaleysi innan stjórnsýslunnar þegar kemur að umgengnistálmunum milli landa. Þegar þeir leita aðstoðar sýslumanna er þeim sagt að málið falli utan lögsögu þeirra og er feðrum vísað út í kuldann. Vegna þessa máls funduðu samtökin með fulltrúum utanríkis- og innanríkisráðuneytis, og var sá fundur afskaplega gagnlegur. Kemur í ljós að í gildi er alþjóðlegur samningur um einkaréttarleg áhrif af brottnámi barna milli landa. Kemur þar skýrt fram að íslensk stjórnvöld eru skuldbundin til að tryggja umgengni skilnaðarbarna ef börnin eru búsett í aðildarríkjum samningsins. Eru Norðurlöndin á meðal samningsríkja. Ljóst er að misbrestur er á að stjórnvöld, þá einkum sýslumannsembættin, gæti að leiðbeiningarskyldu stjórnvalda, svo sem kveðið er á um í stjórnsýslulögum, þegar umgengnisforeldrar leita á náðir embættanna þegar þeim er tálmuð umgengni vegna barns sem búsett er erlendis. Mikilvægt er að árétta að innanríkisráðuneytið tekur við slíkum málum en ekki sýslumannsembættin, og ber ráðuneytinu að tryggja að þarlend stjórnvöld beiti þeim úrræðum sem þar eru lögfest til að koma á umgengni. Er umgengnisforeldrum velkomið að setja sig í samband við samtökin til að fá frekari upplýsingar um úrræði til að knýja fram umgengni. Vilja Samtök umgengnisforeldra jafnframt kalla eftir því að Alþingi breyti barnalögum og barnaverndarlögum á þann hátt, að ástæðulausar og ólögmætar umgengnistálmanir verði skilgreindar sem ofbeldi gagnvart börnum í lögum, þannig að mál verði að barnaverndarmáli um leið og ásökun um tálmun kemur á borð sýslumanns. Í því samhengi virðist þurfa að benda á að feður sem ekki fá að sjá eða umgangast börn sín eru jafnan þjáðir, brotnir og jafnvel veikir vegna þess ofbeldis sem umgengnistálmanir eru. Ættu allir að geta sett sig í þeirra spor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar