Kjósum Oddnýju Hörður Filippusson skrifar 2. júní 2016 12:43 „Varðar mest til allra orða /undirstaðan sé réttleg fundin,“ segir Eysteinn í Lilju. Þetta gildir ekki síst um stjórnmál og stjórnmálastefnur. Samfylkingin - Jafnaðarmannaflokkur Íslands byggir stefnu sína á hugsjónum jafnaðarmanna. Það er mikilvægt að þeir sem vilja vinna þjóð sinni gagn undir merkjum flokksins hafi skýrar hugmyndir um hugmyndafræði jafnaðarstefnunnar. Þó hana beri oft á góma er minna um ítarlegar útlistanir. Hér gefst ekki rúm til slíks en oft er vitnað til orðanna „frelsi, jafnrétti og samstaða“ í þessu samhengi og í nýju stjórnarskránni er talað um “réttlátt samfélag þar sem allir sitja við sama borð”. En vilji menn setja fram í hnotskurn kjarnahugsun hreyfingarinnar má allt eins vísa til siðareglna Alþjóðasambands jafnaðarmanna en þar er m.a. að finna eftirfarandi um erindi þeirra: - Að reka framsækna pólitík sem stuðlar að velferð einstaklingsins, eflingu atvinnulífs, sanngjörnum viðskiptum, félagslegu réttlæti og umhverfisvernd í anda sjálfbærrar þróunar. - Að veita viðnám gegn allri félaglegri og efnahagslegri pólitík sem styður hag forréttindahópa. - Að berjast gegn hverskyns spillingu og hindrunum í vegi góðra stjórnarhátta". Ekkert gamaldags við þetta. Allt eru þetta markmið sem jafnaðarmenn öðrum fremur setja sér. Öðrum meginöflum stjórnmálanna er ekki treystandi til að vinna að þeim enda hafa þeir aðrar hugsjónir, ekki íhaldsmönnum (Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn) og ekki líberölum (Framsókn, Björt framtíð). Vinstri sósíalistar eru þó líklegir til að styðja mörg þeirra enda löngu hættir að boða byltingu og allsherjar þjóðnýtingu. Til hvers eru stjórnmálaflokkar? Nú er í tísku að segja að stjórnmálaflokkar séu óþarfir í nútíma þjóðfélagi. Þetta er að sjálfsögðu alrangt. Þeir eru einmitt mikilvægur þáttur lýðræðisins. Þar hafa þeir tvö hlutverk: Að skilgreina stefnu og að velja fólk til að fylgja eftir þeirri stefnu sem kjörnir fulltrúar. Til þess er mikilvægt að flokkarnir haldi uppi öflugu starfi, að þeir séu fjöldahreyfingar en ekki þröngar klíkur. Hins vegar er sjálfsagt að þeir sem leggja á sig að sinna flokksstarfi, taka þátt í stefnumótun og leggja flokk sínum lið með öðrum hætti beri líka ábyrgð á vali forystumanna og frambjóðenda. Því vali verður ekki útvistað til annarra. Jafnaðarmenn á Íslandi hafa aldrei verið í þeirri stöðu að hafa hreinan meirihluta á þingi. Samt hafa þeir haft gifurleg áhrif á kjör og velferð þjóðarinnar. Jón Baldvinsson mun hafa verið eini þingmaður Alþýðuflokksins er honum tókst að fá samþykkt lög um hvíldartíma sjómanna, vökulögin, með því að sannfæra aðra þingmenn um réttmæti þeirra. Síðan hafa jafnaðarmenn átt frumkvæði að fjölmörgum mikilvægustu framfarasporum í átt til velferðarríkis á Íslandi. Stundum er afl hugmyndanna mikilvægara en afl atkvæðanna. Hvað skiptir máli við val á formanni stjórnmálaflokks? Stundum er rætt um svokallaða "sterka formenn" Slíkir formenn líta gjarnan stórt á sig og ætlast til að þeir sjálfir móti hugmyndir og stefnu flokka sinna eftir eigin höfði og krefjast hlýðni flokksmanna við sig og sína persónu. Slíkir formenn hafa stundum verið áberandi á hægri vængnum. Eðlilegra og heilbrigðara er að velja formenn til að framfylgja þeirri stefnu sem flokkurinn hefur sett fram með lýðræðislegu innra starfi. Slíkur formaður þarf vissulega að vera öflugur talsmaður en fyrst og fremst heiðarlegur og fremstur meðal jafningja, formaður sem ekki setur eigin persónu og metnað framar öllu. Nú stendur fyrir dyrum kosning formanns Samfylkingarinnar - Jafnaðarmannaflokks Íslands. Atkvæðisrétt hafa allir skráðir flokksmenn. Lýðræðislega kjörinn formaður verður í fararbroddi þegar gengið verður til kosninga í haust. Ég vil að sá formaður verði Oddný Harðardóttir. Íslenskir jafnaðarmenn mega ekki missa af því tækifæri að fá að njóta krafta hennar, þekkingar, reynslu, heiðarleika og stefnufestu á formannsstóli. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Verkalýðsfélög í faðmi hins opinbera Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir Skoðun „Ég var nú bara að grínast!“ Kristján Freyr Halldórsson Skoðun Miðflokkarnir tveir í Kópavogi Pétur Björgvin Sveinsson Skoðun Hætta á ferðum í fjölmiðlun á Íslandi Stefán Jón Hafstein Skoðun Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Jónsdóttir Skoðun Börnin sem flytja oft Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir Skoðun Af vanrækslu og myglu Róbert Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Veistu á hvaða lyfjum þú ert? Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Slæleg hagsmunagæsla meirihluta bæjarstjórnar – það þarf að gera mun betur Unnar Jónsson skrifar Skoðun Menntaforystan er að plata þig Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Viltu borga meira fyrir að leggja bílnum þínum í bílastæðahúsi? Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Réttindabarátta fatlaðs fólks í 65 ár Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Eitt markmið, betra Hveragerði Guðjón Óskar Kristjánsson,Jónas Guðnason,Lárus Jónsson skrifar Skoðun Þegar áframhald verður bakslag Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sjálfstætt líf og fimm spurningar sem skipta öllu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samvinnuhugsjón í leikskólamálum Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun „Ég var nú bara að grínast!“ Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hvernig ræktum við frið í huga fólks? Sæunn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Borgin skapi hlutastörf Stefán Pálsson skrifar Skoðun Gleymum ekki hestamönnum og skátum Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Er gott að eldast á Akranesi? Hugrún Eva Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Eitt samtal getur breytt deginum Alda Björk Harðardóttir skrifar Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason skrifar Skoðun Reykjanesbrautin - við leysum hnútinn Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir skrifar Skoðun Menningin er hjartað í Hafnarfirði Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Lækkun gjalda: skref í rétta átt, en enn langt í land Valborg Ösp Árnadóttir Warén skrifar Skoðun Sveitarfélög á Íslandi og Evrópusambandið Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Gefum sköpunargáfu barna það pláss sem hún á skilið Guðrún Lína Thoroddsen skrifar Skoðun Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Skólaskeyti til Garðbæinga! Harpa Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsfélög í faðmi hins opinbera Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Gæði kennslu: Farsæld sem markmið menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Skoðun Miðflokkarnir tveir í Kópavogi Pétur Björgvin Sveinsson skrifar Skoðun Heimurinn þarfnast milljón fleiri ljósmæðra Unnur Berglind Friðriksdóttir skrifar Skoðun Byggjum það sem fólkið vill Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Íþróttaborgin Reykjavík Bjarni Guðjónsson skrifar Sjá meira
„
Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun
Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir Skoðun
Skoðun Slæleg hagsmunagæsla meirihluta bæjarstjórnar – það þarf að gera mun betur Unnar Jónsson skrifar
Skoðun Eitt markmið, betra Hveragerði Guðjón Óskar Kristjánsson,Jónas Guðnason,Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason skrifar
Skoðun Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Gæði kennslu: Farsæld sem markmið menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun
Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir Skoðun