Hollendingurinn Björn Kuipers dæmir leik Frakklands og Íslands í átta liða úrslitum EM 2016 á sunnudagskvöldið en Kuipers er einn allra færasti dómari heims.
Kuipers hefur áður dæmt stóran leik hjá Íslandi en hann hélt um flautuna í seinni umspilsleik Króatíu og Íslands um sæti á HM 2014. Þar rak hann Mario Mandzukic út af fyrir gróft brot á Jóhanni Berg Guðmundssyni.
Þessi 43 ára gamli dómari hefur dæmt marga stórleiki á borð við úrslitaleik Evrópudeildarinnar 2013, úrslitaleik álfukeppninnar 2013 og úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2014. Þá hefur hann dæmt marga aðra stórleiki í Meistaradeildinni.
Hann komst ekki lengra en í 16 liða úrslit á HM 2014 en þar hjálpaði honum ekki hversu langt Holland komst á mótinu. Það vann á endanum bronsið.
Kuipers dæmdi leik Þýskalands og Póllands í riðlakeppni EM 2016 og viðureign Króatíu og Spánar.
Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).
Einn besti dómari heims á flautunni hjá Íslandi á sunnudaginn

Tengdar fréttir

Heimir: Byrjunarliðið veikist ekkert
Eftir sigurinn á Englandi á mánudag og kærkomið frí í fyrradag tók alvaran við hjá íslenska landsliðinu í gær. Ísland spilar enn og aftur sinn stærsta leik frá upphafi þegar gestgjafar okkar verða andstæðingar Íslands í 8-liða úrslitum EM.

Formaður KSÍ: Bónusgreiðslur til leikmanna taka mið af Norðurlöndunum
"Þeir bera sinn skerf frá þessu. Það er hluti af þeirra miklu vinnuframlagi,“ segir Geir Þorsteinsson.

Barnapía strákanna okkar styður Ísland þrátt fyrir að hafa alist upp í París
Kristján Óli Pascalsson Ssossé er lykilmaður í íslenska karlalandsliðinu, utan vallar.

Fjórar ástæður fyrir því að 24 liða EM er betra | Ísland eitt besta dæmið
Ekki eru allir sammála um gæði 24 liða Evrópumóts en hér eru rökin með breytingunni.