Einn himinlifandi með frábært geitungasumar Garðar Örn Úlfarsson skrifar 30. júlí 2016 07:00 Ólafur Sigurðsson var í gær í Vesturbænum í Reykjavík að eyða geitungabúi sem var þar upp uppi í tré. vísir/hanna „
Það er mikið geitungasumar, þetta er æðislegt,“ segir Ólafur Sigurðsson geitungabani, einnig kallaður Köngulóarmaðurinn. „Það er fullt af holugeitungi og trjágeitungabúin eru stærri en ég hef nokkurn tíma séð. Þetta er alveg dúndurvertíð, það er hreinlega búið að vera alveg brjálað,“ segir Ólafur sem hefur fengist við að uppræta geitungabú í fimmtán ár. „Það var ekkert sérstakt í fyrra og enn þá verra þar áður en núna er mjög mikið geitungasumar, á við það sem best hefur verið,“ segir Ólafur. Helst sé að jafna við sumrin 2003 og 2004. „Þá var svakalega mikið.“ Að sögn Ólafs stinga geitungar ekki nema þeim sé ógnað. „Þeir eru úti um allt og fólk er að slá til þeirra og æsa þá upp og þá eiga þeir það til að stinga,“ segir hann. Flugurnar séu mjög örar þegar hlýtt sé í veðri og þá sé frekar að búast við stungum. Ólafur kveðst ekki vera í sérstökum hlífðargalla vegna þess hversu langan tíma taki að klæða sig í hann og úr. Stundum verða óhöpp játar hann enda sé hann að ráðast með eitri á bú geitunganna. „Þó að maður sé kannski stunginn tvisvar, þrisvar á sumri þá er það ekkert alvarlegt. Það er gjaldið fyrir að losna við gallann.“Geitungur.Ólafur segir starfið spennandi og því fylgi útivera í náttúrunni. „Ég hef verið kennari, ég hef verið til sjós á togurum, hef verið rannsóknarmaður hjá Raunvísindastofnun, verkefnastjóri hjá Iðntæknistofnun, yfirgæðamatsmaður hjá fiskvinnslu á Hjaltlandseyjum og ég get haldið áfram að telja en þetta er það allra skemmtilegasta sem ég hef gert,“ segir Ólafur. Þannig að viðskiptin blómstra þótt ekki séu allir eins ánægðir og Ólafur með það. „Ég veit það,“ svarar Köngulóarmaðurinn og hlær glaðhlakkalega.Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fleiri fréttir Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Sjá meira